Jólamatseðillinn
Þriggja rétta hátíðarmatseðill fyrir alla gesti og glæsilegt jólahlaðborð fyrir hópa. Klassískir jólaréttir eldaðir úr fyrsta flokks hráefni úr næsta nágrenni. Matseðlana má sjá hér fyrir neðan.
Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Nóvember og desember 2026 · Ölfus
Þriggja rétta jólamatseðill á veitingastaðnum ÓMI, jazzkvöld 5. og 12. desember og hljóð og notaleg vetrarkyrrð við hafið. Glæsilegt jólahlaðborð í boði fyrir hópa frá 21. nóvember.
Laugardagarnir 5. og 12. desember
Ljúfur jazz verður leikinn tvö laugardagskvöld í desember undir hátíðlegum þriggja rétta jólamatseðli.
Þriggja rétta hátíðarmatseðill fyrir alla gesti og glæsilegt jólahlaðborð fyrir hópa. Klassískir jólaréttir eldaðir úr fyrsta flokks hráefni úr næsta nágrenni. Matseðlana má sjá hér fyrir neðan.
Lifandi píanóleikur gefur kvöldinu hlýjan og hátíðlegan tón.
Gerðu enn betur við þig og láttu hlýlegt hótelherbergi bíða þín að loknum dýrindis kvöldverði.
Matseðlar
Aðeins fyrir hópa · Frá 21. nóvember · 15.900 kr. á mann
Gjafabréf
Gjafabréf frá Black Sand Hotel hentar við öll hátíðleg tilefni. Veldu fjárhæð eða tilbúna upplifun og sendu beint til viðtakanda.

Hópar og fyrirtæki
Við tökum vel á móti hópum, allt að 150 manns, í dásamlegan kvöldverð og notalega gistingu. Við sníðum viðburðinn að ykkar þörfum, hvort sem óskað er eftir afmörkuðu svæði fyrir hópinn, langborði á veitingastaðnum eða öllu viðburðarýminu.
Bókanir
Hátíðlegur þriggja rétta jólamatseðill allan desembermánuð og veglegt jólahlaðborð fyrir hópa frá 21. nóvember. Hafðu samband til að taka frá borð eða skipuleggja gistingu fyrir hópinn.
info@blacksandhotel.is