Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Um okkur

Staður til að taka stöðuna og staldra við

Hótelið okkar

Við erum ekki að flækja hlutina

Hér búa þægindin í einfaldleikanum og litlu hlutunum: notalegu rúmi, hlýrri birtu og umhverfinu sem opnar faðminn í allri sinni dýrð.

Herbergin og hótelið allt eru hugsuð sem athvarf frá amstri dagsins.

Hér má gleyma stund og stað og finna hvað það er notalegt að njóta lífsins með dásamlegum mat og vakna við öldugjálfrið og goluna fyrir utan gluggann.

Verið velkomin

Við viljum að allir okkar gestir upplifi ánægjulega dvöl á Black Sand Hotel og hugsi til okkar næst þegar þeir leita að stað til að anda djúpt, staldra við og njóta.

Black Sand Hotel

Komdu og gistu hjá okkur

Skoða laus herbergi
Skoða laus herbergi