
Árshátíðir og veislur
Fordrykkur með útsýni yfir hafið og svarta sandinn, glæsilegur veislukvöldverður, dansgólf og gisting.
Sæti fyrir allt að 150 · Þrír réttir eða hlaðborð · Gisting og morgunverður
Fá tilboðAthugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Hópar og fyrirtæki · 40 mínútur frá Reykjavík
Árshátíðir, fundir, vinnustofur eða stórafmæli? Viðburðarýmið okkar rúmar allt að 150 manns fyrir hvers konar tilefni. Að lokinni dagskrá tekur veitingastaðurinn ÓMUR við og notaleg herbergin bíða gestanna í lok kvölds. Hér liggur ekkert á.
Það sem við bjóðum

Fordrykkur með útsýni yfir hafið og svarta sandinn, glæsilegur veislukvöldverður, dansgólf og gisting.
Sæti fyrir allt að 150 · Þrír réttir eða hlaðborð · Gisting og morgunverður
Fá tilboð
Dagsfundir, stjórnarfundir og vinnuferðir með gistingu. Björt og vel búin fundarrými með útsýni út á hafið.
Fundarrými fyrir 8 til 60 manns · Hádegisverður og veitingar frá ÓMI · Dagsviðburður eða með gistingu
Fá tilboð
Öll saman á einum stað. Náttúruupplifun yfir daginn og norðurljósin um kvöldið.
Verð fyrir hópa frá 10 herbergjum
Fá tilboð
Langborð fyrir minni hópa og viðburðarýmið fyrir þá stærri. Veitingastaðurinn ÓMUR sér um hátíðlegt jólahlaðborð, með lifandi píanóleik og gistingu eftir fögnuðinn.
Nóvember og desember · Langborð eða einkarými · Jólapakki með gistingu
Fá tilboðSvona gengur þetta fyrir sig
Segðu okkur frá hópnum: fjölda, áætlaðri dagsetningu og tilefni. Við svörum með tillögu að dagskrá, matseðli og verði.
Viðburðarými, veitingar, gisting og afþreying, allt sniðið að hópnum. Hver hópur fær sitt eigið tilboð.
Hópurinn mætir og nýtur stundarinnar á meðan við sjáum um framkvæmdina.
Svarti sandurinn
Gakktu örfá skref frá anddyrinu og út á sandinn sem hótelið er nefnt eftir. Andaðu að þér fersku sjávarloftinu og leyfðu þér að njóta kyrrðarinnar. Við sjáum um allt hitt.
Skoða lausar dagsetningar
Fyrirspurn
Við svörum með tillögu að dagsetningu, dagskrá og verði, án allra skuldbindinga.