Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Hafðu samband

Höldum sambandi

Hafðu samband ef þú ert með spurningar, vilt ráð um ferðalagið eða eitthvað allt annað.

Heimilisfang

Óseyrartangi 2, 816 Ölfus

Netfang

Almennar fyrirspurnir: info@blacksandhotel.is
Bókanir: booking@blacksandhotel.is
Fjölmiðlar: press@blacksandhotel.is
Viðburðir, samstarf og samningskjör: sales@blacksandhotel.is

Ferðaskrifstofur: sendið póst á booking@blacksandhotel.is

Símanúmer

+354 517 3131

Skilaboð

Sendu okkur skilaboð

+354 517 3131
info@blacksandhotel.is

Algengar spurningar

Er morgunverður innifalinn í gistingu á Black Sand Hotel?

Já, morgunverðarhlaðborð er innifalið í allri gistingu.

Bjóðið þið upp á akstur frá Reykjavík?

Já, hægt er að panta einkaakstur gegn aukagjaldi.

Get ég breytt bókun eða afbókað?

Já, þú getur breytt bókun eða afbókað allt að 48 klukkustundum fyrir innritun, nema bókunin sé óendurgreiðanleg.

Hentar hótelið börnum?

Já, fjölskyldur eru hjartanlega velkomnar. Barnarúm eru í boði og í völdum herbergjum eru svefnsófar fyrir börn allt að 16 ára. Einnig er hægt að fá samliggjandi herbergi fyrir fjölskyldur sem vilja meira rými.

Hvernig kemst ég á hótelið?

Black Sand Hotel er á Óseyrartanga 2 í Ölfusi, um 40 mínútur frá Reykjavík og rúmlega klukkustund frá Keflavíkurflugvelli.

Er hægt að hlaða rafbíla?

Já, hleðslustöðvar eru fyrir allt að sex rafbíla. Upplýsingar um verð fást í móttökunni.

Í hvaða tímabelti er Ísland?

Ísland er á GMT (UTC+0) allt árið og klukkunni er aldrei breytt.

Er straujárn á herbergjunum?

Straujárn eru ekki á herbergjunum en þú getur fengið straujárn lánað í móttökunni.

Má reykja á hótelinu?

Hótelið er alfarið reyklaust, líka fyrir rafsígarettur og veip. Aðeins má reykja á merktum svæðum utandyra.

Hvernig innstungur og spenna eru á herbergjunum?

Innstungur eru evrópskar (gerð C/F), 230 V og 50 Hz. Ef tækin þín eru með annars konar kló þarftu millistykki.

Er þráðlaust net innifalið?

Já, frítt þráðlaust net fylgir allri gistingu.

Eru gæludýr leyfð?

Gæludýr eru ekki leyfð á hótelinu. Þjónustudýr eru velkomin gegn gildum gögnum.

Get ég komið snemma eða farið seint?

Innritun er frá kl. 15:00 og útritun til kl. 11:00. Hægt er að óska eftir snemmbúinni innritun eða síðbúinni útritun ef laust er. Hafðu samband við móttökuna.

Ég fer áður en morgunverður hefst. Get ég fengið morgunverð með mér?

Já. Láttu móttökuna vita fyrirfram og við útbúum nesti fyrir 20 €.

Get ég fengið morgunverð ef ég kem fyrir innritun?

Já, morgunverður fyrir innritun kostar 30 €.

Er hótelið aðgengilegt fyrir hjólastóla?

Já. Rampur er við innganginn, lyftur á milli hæða og Superior King herbergin eru með baðherbergjum sem eru hönnuð fyrir hjólastóla.

Black Sand Hotel

Herbergið bíður þín

Skoða laus herbergi
Skoða laus herbergi