Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Allar sögur · Blogg · 17. febrúar 2026

Gullni hringurinn eða suðurströndin: hvora leiðina áttu að velja?

Gullni hringurinn eða suðurströndin: hvora leiðina áttu að velja?

Margir standa frammi fyrir sömu spurningunni þegar þeir skipuleggja ferð um Suðurland: Á ég að fara Gullna hringinn eða suðurströndina? Báðar leiðirnar eru vinsælar, báðar eru stutt frá Reykjavík og báðar sýna landið frá sinni hráustu og fallegustu hlið.

En um leið og þú byrjar að skipuleggja ferðina kemur munurinn í ljós.

Valið snýst ekki bara um vegalengdir. Það snýst um hraða, landslag og stemningu. Önnur leiðin er þétt og söguleg, hin teygir sig meðfram hafinu, mótuð af jöklum og svörtum ströndum.

Ef þú ert að velja á milli er hér það sem gott er að vita.

Gullni hringurinn og suðurströndin: stuttur samanburður

Atriði

Gullni hringurinn

Suðurströndin

Heildaraksturstími

Um 6 til 8 klst. (frá Ölfusi/Selfossi)

Um 10 til 12 klst. (fram og til baka, aðeins að Vík)

Landslag

Jarðflekar, goshverir og fossar

Fossar, jöklar og svartar sandstrendur

Helstu staðir

Þingvellir, hverasvæðið við Geysi, Gullfoss

Seljalandsfoss, Skógafoss, Reynisfjara, Jökulsárlón

Hentar best

Þeim sem koma í fyrsta sinn og áhugafólki um sögu og jarðfræði

Ævintýrafólki og ljósmyndurum

Andrúmsloft

Sígilt og vel skipulagt

Villt, hrátt og víðáttumikið

Gullni hringurinn: sígildu perlurnar

Gullni hringurinn er frægasta ferðamannaleið landsins, um 300 km hringleið sem byrjar og endar nálægt höfuðborginni. Þú getur þó allt eins lagt af stað af Suðurlandi. Leiðina má auðveldlega fara á einum degi, svo hún hentar vel þeim sem hafa nauman tíma.

Leiðin tengir saman þrjá þekktustu staðina:

  • Þingvelli

  • Hverasvæðið við Geysi

  • Gullfoss

Þingvellir

Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO og krúnudjásn leiðarinnar. Þetta er einn fárra staða á jörðinni þar sem hægt er að ganga á milli Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans, og sigdalurinn sýnir svart á hvítu að landið er að gliðna í sundur. Hér var Alþingi stofnað árið 930, elsta starfandi þing í heimi.

Ef þú hefur tíma er vinsælt að snorkla í Silfru á milli flekanna með reyndum leiðsögumanni. Í þjóðgarðinum er líka Öxarárfoss, með stórgrýti úr hrauni við fossrótina.

Göngustígur á milli jarðflekanna á Þingvöllum.

Hverasvæðið við Geysi

Á hverasvæðinu við Geysi rýkur og kraumar í jörðinni. Geysir sjálfur er að mestu í dvala, en Strokkur, rétt hjá, veldur engum vonbrigðum. Hann gýs á 6 til 10 mínútna fresti og þeytir heitu vatni allt að 40 metra upp í loftið.

Göngupallar gera auðvelt að skoða svæðið á öruggan hátt. Á göngunni finnurðu líklega eggjalykt í loftinu, en það er brennisteinninn úr iðrum jarðar.

Strokkur gýs á hverasvæðinu við Geysi.

Gullfoss

Gullfoss er gríðarmikill foss í tveimur þrepum sem steypist með drunum ofan í djúpt gljúfur. Á sólríkum dögum myndast oft regnbogar í úðanum og á veturna eru grýlukerti og snævi þaktir bakkar allt um kring.

Gullfoss er ysti punktur Gullna hringsins áður en vegurinn liggur aftur í átt til strandar.

Gott ráð: Gullni hringurinn geymir fjölda leyndra staða. Ef þú keyrir sjálf eða sjálfur, gefðu þér tíma til að skoða minni fossa, heitar laugar og tómatagróðurhús.

Regnbogi í úðanum við Gullfoss.

Suðurströndin: Ísland í öllu sínu veldi

Ef Gullni hringurinn er fáguð upplifun er suðurströndin heil ævintýrasaga. Leiðin fylgir hringveginum austur, á milli gnæfandi fjalla og brimsins.

Á leiðinni eru meðal annars:

  • Seljalandsfoss

  • Skógafoss

  • Reynisfjara

  • Sólheimajökull

  • Jökulsárlón

  • Demantsströndin

    Frægustu fossarnir: Seljalandsfoss og Skógafoss

    Tveir af frægustu fossum Suðurlands standa við þessa leið. Seljalandsfoss er einstakur því þar geturðu gengið á bak við fossinn sjálfan. Stuttu austar tekur Skógafoss við, tignarlegur 60 metra foss sem myndar oft tvöfaldan regnboga.

    Seljalandsfoss undir mjúkum bleikum himni.

    Reynisfjara

    Rétt við Vík er Reynisfjara, dulúðug og seiðandi. Hún er oft nefnd ein fallegasta strönd heims utan hitabeltisins, ekki síst vegna stuðlabergsins og Reynisdranga sem rísa úr hafinu.

    Það er margt hægt að gera í grennd við svörtu sandstrendurnar. Keyrðu út á Dyrhólaey og horfðu yfir Reynisfjöru ofan frá. Þaðan sérðu líka steinbogann fræga og lundabyggðina sem sest þar að á hverju sumri. Þú getur líka farið á fjórhjóli eða hestbaki að flugvélarflakinu á Sólheimasandi.

    Inni í stuðlabergshelli í Reynisfjöru.

    Jöklar og lón: Sólheimajökull og Jökulsárlón

    Austar breytist landslagið úr hrauni í ís. Þú getur farið í jöklagöngu á Sólheimajökli, og ef þú nennir að keyra lengra er Jökulsárlón algjört augnakonfekt. Þar brotna bláir ísjakar af jöklinum og reka til sjávar, og hinum megin við veginn er Demantsströndin þar sem jakarnir skolast á land eins og glitrandi kristallar. Ef heppnin er með þér sérðu kannski forvitinn sel á milli jakanna.

    Ísjakar á reki í Jökulsárlóni.

    Tíminn: stuttur hringur eða langur vegur?

    Tíminn er stærsti munurinn á leiðunum tveimur.

    • Gullni hringurinn er þægileg dagsferð. Stutt er á milli staða og þú getur séð það helsta á um 6 klukkustundum. Þá er nægur tími eftir fyrir rólegan kvöldverð eða heitan pott.

    • Suðurströndin krefst meira úthalds. Ferð að Jökulsárlóni og til baka frá Selfossi og nágrenni tekur um 10 klukkustundir með fáum stoppum. Á veturna, þegar birtan er stutt, dugar dagurinn kannski bara til að fara að Vík og heim aftur.

      Mannfjöldi og stemning

      Gullni hringurinn er gríðarlega vinsæll og vegna nálægðarinnar við Reykjavík er þar oft fullt af rútum. Ef þú kýst næði getur verið ansi margt um manninn þar á annatímum.

      Suðurströndin er líka vinsæl, en þar dreifast staðirnir yfir stærra svæði. Austan við Vík fækkar ferðafólkinu verulega og þá finnurðu fyrst fyrir víðáttunni.

      Gott ráð: Viltu skoða Gullna hringinn í rólegheitum? Farðu snemma morguns, eða farðu hringinn öfugt og byrjaðu á Gullfossi, því rúturnar byrja yfirleitt á Þingvöllum.

      Vegur 36 á leið að Þingvöllum.

      Veður og akstursskilyrði

      Báðar leiðirnar eru yfirleitt í góðu ástandi, en suðurströndin er berskjaldaðri fyrir veðri. Hvassviðri getur gert aksturinn á hringveginum krefjandi, ekki síst á húsbílum. Gullni hringurinn liggur meira inn til landsins og í betra skjóli, svo hann er öruggari kostur þegar vetrarveður er slæmt.

      Athugaðu: Skoðaðu alltaf veðurspána áður en þú leggur af stað, því veðrið getur breyst á örfáum mínútum.

      Black Sand Hotel: hliðið að Suðurlandi

      Góð staðsetning skiptir öllu. Í stað þess að keyra aftur til Reykjavíkur á hverju kvöldi er hægt að gista á vel staðsettu hóteli á Suðurlandi.

      Black Sand Hotel í Ölfusi hentar vel fyrir bæði Gullna hringinn og suðurströndina. Frá hótelinu eru um 40 mínútur inn á Gullna hringinn, og ef þú heldur austur liggur suðurströndin fyrir framan þig.

      Fyrir utan staðsetninguna býður Black Sand Hotel upp á:

      • Þægileg herbergi: Herbergi og svítur Black Sand Hotel eru í skandinavískum stíl, innblásnum af náttúrunni. Öll herbergin eru búin vönduðum DUX-rúmum svo þú vaknar vel úthvíld fyrir næsta dag.

      • Mat og drykk: Eftir daginn á ferðinni er gott að slaka á á veitingastaðnum og barnum ÓMI. Þar er borinn fram íslenskur matur með útsýni yfir hafið.

      • Vellíðan: Heilsulind hótelsins, sem opnar undir lok árs 2026, er hönnuð til að endurnæra, rólegur staður til að horfa á hafið og himininn.

        Á Black Sand Hotel nýturðu náttúrunnar án asa. Þú getur farið Gullna hringinn um morguninn og verið komin aftur í fjörugöngu fyrir sólsetur, og kannski framlengt dvölina og skoðað suðurströndina daginn eftir.

        Löng svört sandströnd á Suðurlandi.

        Hvora leiðina áttu að velja?

        Svarið fer alfarið eftir því hvernig þú vilt ferðast.

        Veldu Gullna hringinn ef þú hefur áhuga á sögu, hefur nauman tíma eða vilt sígilda kynningu á íslensku landslagi. Hann er þægilegur, fræðandi og óneitanlega fallegur.

        Langar þig að sjá svartar strendur, ganga á jökli eða horfa á ísjaka á reki? Þá er suðurströndin leiðin fyrir þig. Hún krefst meiri aksturs, en í staðinn færðu eitt mest myndaða landslag jarðar.

        Þegar allt kemur til alls er best að skoða Suðurland án asa. Með því að gista á hóteli á Suðurlandi, eins og Black Sand Hotel, geturðu skoðað báðar leiðirnar í rólegheitum.

        Ertu enn í vafa? Skoðaðu þriggja daga ferðaáætlun um Suðurland sem nær bæði yfir Gullna hringinn og suðurströndina.

        Algengar spurningar um Gullna hringinn og suðurströndina

        Er hægt að fara bæði Gullna hringinn og suðurströndina á einum degi?

        Tæknilega já, en það tekur 12 til 14 klukkustundir og gefur mjög stuttan tíma á hverjum stað. Betra er að velja aðra leiðina eða skipta þeim á tvo daga.

        Á hvorri leiðinni eru fallegri fossar?

        Suðurströndin vinnur á fjölbreytninni: þar eru Seljalandsfoss, sem þú gengur á bak við, og hinn voldugi Skógafoss. Á Gullna hringnum er bara einn stór foss, Gullfoss, en hann er líka einn tilkomumesti foss landsins.

        Er suðurströndin hættulegri en Gullni hringurinn?

        Já, fyrst og fremst vegna aðstæðna við ströndina. Á suðurströndinni er Reynisfjara, þekkt fyrir lífshættulegar öldur, og vegalengdirnar eru mun lengri. Gullni hringurinn er malbikuð og þétt hringleið sem er yfirleitt auðveldari yfirferðar árið um kring.

        Hvað þarf ég mikinn tíma fyrir hvora leið?

        Gullna hringinn má fara þægilega á 6 til 8 klukkustundum. Suðurströndin krefst að minnsta kosti 10 til 12 klukkustunda, bara að Vík og til baka. Ef þú vilt bæta Jökulsárlóni við þarftu í raun tvo daga svo ferðin verði ekki að þrekraun.

        Hvor leiðin er betri til að sjá norðurljósin?

        Hvorug leiðin tryggir norðurljós, því þau ráðast af virkni sólar og skýjafari. Suðurströndin býður þó upp á dramatískari forgrunn fyrir norðurljósamyndatökur, eins og flugvélarflakið eða stuðlabergið.

        Þarf ég fjórhjóladrifinn bíl á þessar leiðir?

        Á sumrin er fjórhjóladrif óþarft, enda eru báðar leiðirnar malbikaðar. Á veturna er fjórhjóladrif eindregið ráðlagt á suðurströndinni vegna hvassviðris og snöggra breytinga á færð. Gullni hringurinn er yfirleitt betur ruddur en getur samt verið hálur.

        Hvor leiðin er fáfarnari?

        Gullni hringurinn er fjölsóttasta leið landsins vegna nálægðarinnar við Reykjavík. Suðurströndin er líka fjölfarin, en þar dreifast staðirnir yfir mun stærra svæði svo hún er aðeins rýmri á annatímum.

Skoða laus herbergi