Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Black Sand Hotel

Dvalarskilmálar

Vinsamlegast kynntu þér eftirfarandi skilmála fyrir komu og á meðan á dvölinni stendur.

1. Bókanir, innritun og útritun

  • Innritun er frá kl. 15:00 og útritun fyrir kl. 11:00.
  • Gestir þurfa að framvísa gildum skilríkjum með mynd við innritun og fylla út og undirrita skráningarkort.
  • Allir gestir þurfa að leggja fram gilt greiðslukort vegna hugsanlegra aukagjalda, tjóns eða sekta.
  • Greiðsla fer fram eins og tilgreint er í bókunarstaðfestingu, við bókun eða 48 klukkustundum fyrir komu.
  • Endurgreiðslur og afbókanir fara eftir skilmálum bókunarinnar. Óendurgreiðanlegar bókanir fást ekki endurgreiddar, heldur ekki ef gestur fer fyrr. Langtímabókanir fást ekki endurgreiddar fyrir ónýttar nætur eftir að dvölin hefst.
  • Hótelið getur hafnað innritun gesta sem framvísa ekki gildum skilríkjum eða greiðslukorti, hafa áður valdið alvarlegu tjóni eða brotið reglur hótelsins, eða ógna öryggi, heilsu, þægindum eða orðspori annarra eða hótelsins.
  • Hótelið áskilur sér rétt til að binda enda á dvöl án endurgreiðslu ef um alvarleg brot er að ræða.

2. Umgengni og ábyrgð gesta

  • Ólögráða börn skulu ávallt vera í fylgd forráðamanna. Forráðamenn bera fjárhagslega ábyrgð á tjóni af völdum barna.
  • Gestir bera fjárhagslega ábyrgð á tjóni á eigum hótelsins af þeirra völdum eða gesta þeirra. Gjöld geta verið færð á kortið sem er á skrá.
  • Öryggisreglur: skrúfið fyrir krana og lokið hurðum og gluggum þegar farið er úr herberginu, og notið ekki eigin hitatæki eða sambærileg tæki í herberginu.
  • Óheimilt er að valda óhóflegum hávaða, óþægilegri lykt eða truflun fyrir aðra gesti.
  • Atvinnustarfsemi og sala á vörum á hótelinu er óheimil.
  • Óheimilt er að spila eigin tónlist nema með sérstöku leyfi hótelstjórnar. Hátalarar, hljóðfæri og sambærileg hljóðtæki eru ekki leyfð.
  • Gestir bera fjárhagslega ábyrgð á tjóni sem þeir valda á húsgögnum og innréttingum hótelsins. Kostnaður vegna viðgerða eða endurnýjunar getur verið innheimtur.

3. Ábyrgð hótelsins á ökutækjum á bílastæði

  • Hótelið ber ekki ábyrgð á tjóni, þjófnaði eða missi bíla á bílastæði hótelsins, þar með talið innihaldi þeirra eða munum sem skildir eru eftir í þeim.
  • Hótelið ber ekki ábyrgð á tjóni á bílum af völdum náttúruafla, þar á meðal snjóstorma, hagléls, vinds, ösku, særoks eða annarra óviðráðanlegra atvika.
  • Gestir bera sjálfir ábyrgð á verðmætum sínum og hótelið ber ekki ábyrgð á munum sem skildir eru eftir í bílum í stað þess að geyma þá í öryggishólfi.

4. Hjálparhundar og þjónustudýr

  • Þjónustudýr eru leyfð á hótelinu gegn framvísun viðeigandi og gildra vottorða.
  • Gestir skulu tryggja að þjónustudýr séu undir stjórn og valdi hvorki truflun né tjóni.
  • Hótelið áskilur sér rétt til að neita dýrum sem uppfylla ekki þessi skilyrði um aðgang eða óska eftir að þau verði fjarlægð.

5. Reykingar, hættuleg efni og bannaðir munir

  • Hótelið er alfarið reyklaust og það á líka við um rafrettur, veip og önnur reykingatæki. Aðeins má reykja á merktum svæðum utandyra.
  • Brot varða 300 evra sekt sem er færð á kortið sem er á skrá.
  • Óheimilt er að neyta áfengis eða matar sem ekki er keyptur á hótelinu í almennum rýmum. Brot geta varðað aukagjaldi fyrir þrif.

6. Öryggi og persónuvernd

  • Næturró er frá kl. 22:00 til 07:00; gestir skulu forðast óhóflegan hávaða.
  • Hótelið getur hafnað aðgangi utanaðkomandi án skýringa.
  • Öryggismyndavélar eru í almennum rýmum og við innganga og taka eingöngu upp mynd, ekki hljóð. Gögnum er aðeins deilt með þar til bærum aðilum samkvæmt lögum.

7. Ýmis ákvæði

  • Myndatökur og upptökur í atvinnuskyni krefjast skriflegs leyfis hótelstjórnar fyrirfram.
  • Gestir mega færa húsgögn lítillega til, svo lengi sem öryggi og notagildi skerðist ekki.
  • Gæludýr eru ekki leyfð.
  • Óskilamunir eru geymdir í einn mánuð; matvælum og viðkvæmum vörum er fargað strax. Hótelið fylgir persónuverndarlögum við meðferð persónuupplýsinga.

8. Óviðráðanleg atvik og ábyrgð á eigum gesta

  • Hótelið ber ekki ábyrgð á tapi, tjóni eða töfum af völdum atvika sem eru utan þess sem hótelið eða gesturinn fá stjórnað, þar á meðal náttúruhamfara, aftakaveðurs, rafmagnsleysis, verkfalla, stjórnvaldsaðgerða eða annarra ófyrirséðra atvika.
  • Ef slík atvik valda tjóni á eða missi persónulegra eigna gesta takmarkast bætur við tryggingavernd hótelsins.
Skoða laus herbergi