
Brúðkaup
Brúðkaup við svarta sandinn
Útsýnið, umgjörðin og þjónustan. Á Black Sand Hotel mynda svartar strendur og opið hafið einstaka umgjörð um brúðkaupið ykkar. Hvort sem það er lítil athöfn eða stór veisla mætast íslensk náttúra, falleg hönnun og minningar sem endast alla ævi.

Þjónusta
Allt brúðkaupið á einum stað
Á Black Sand Hotel fer allur dagurinn fram á einum stað með útsýni yfir hafið. Teymið okkar og traustir samstarfsaðilar, eins og Pink Iceland, blómaskreytar og ljósmyndarar, sjá til þess að dagurinn gangi snurðulaust og verði eins og þið sjáið hann fyrir ykkur.
Full brúðkaupsþjónusta
- Brúðkaupsstjóri og umsjón á staðnum
- Sérsniðnir matseðlar með íslensku ívafi
- Full barþjónusta og kokteilar valdir fyrir daginn
- Blómaskreytingar, skraut og leiga á búnaði
- Ljósmyndarar og kvikmyndatökufólk sem við vinnum með
- Plötusnúður, lifandi tónlist og lýsing
- Brúðarsvíta og einkarými til undirbúnings
- Uppsetning og frágangur fylgja
- Frítt þráðlaust net ásamt hljóð- og ljósakerfi
Tímalaus umgjörð um dag sem lifir í minningunni. Black Sand Hotel stendur við Atlantshafið á Suðurlandi og sameinar landslagið, fólkið og smáatriðin sem gera brúðkaupið að ykkar.

Hótelið okkar
Brúðkaupsstaður út af fyrir ykkur
Á Black Sand Hotel mætast fáguð hönnun og hrár kraftur íslenskrar náttúru. Rýmin tengja saman landslagið, bygginguna og fólkið sem kemur saman til að fagna.
Staðurinn í hnotskurn
- Athafnarstaður við hafið með útsýni yfir svörtu ströndina
- Fágað viðburðarými með stórum útsýnisgluggum
- Vönduð húsgögn fyrir allt að 150 gesti
- Nútímalegur veitingastaður og fullbúið veislueldhús
- Setustofa og verönd fyrir fordrykki og myndatökur
- Athöfn innandyra eða utandyra
Með víðu útsýni yfir hafið og natni í hverju smáatriði verða augnablikin að minningum sem eru jafn tímalausar og svarti sandurinn sjálfur.
Gisting með útsýni fyrir ykkur og gestina
Það er sjaldgæft að geta haldið brúðkaupið og hýst gestina á sama stað. Í 79 herbergjum og svítum með útsýni yfir hafið, fjöllin eða ána geta allir hlakkað til góðs nætursvefns eftir veisluna.
Gistingin í hnotskurn
- Glæsileg herbergi og svítur með vönduðum rúmum og mjúkri lýsingu
- Hópbókanir og frátekin herbergi fyrir brúðkaupsgesti
- Morgunverður innifalinn alla daga
- Hægt að uppfæra í brúðarsvítu
- Heilsulind við hafið, opnar undir lok árs 2026
- Afþreying í næsta nágrenni
Fagnið með íslensku bragði
Eldhúsið okkar setur saman matseðla úr besta hráefni landsins, allt frá sjávarfangi og íslensku lambi að heimagerðum eftirréttum og hráefni úr héraði, með góðum vínum og kokteilum hússins.
Byrjið á móttökukvöldverði, haldið veisluna og kveðjið gestina með dögurði daginn eftir. Frá fjöruborðinu að norðurljósunum er umgjörð fyrir hvern hluta dagsins.
Leiðin á Black Sand Hotel
Hótelið stendur á Óseyrartanga í Ölfusi, 40 mínútur frá Reykjavík og rúmlega klukkustund frá Keflavíkurflugvelli. Þangað er auðvelt að komast en samt er eins og heimurinn sé víðs fjarri. Móttakan getur aðstoðað við að skipuleggja akstur fyrir gesti.

Brúðkaup sem á engan sinn líka
Hvert par fær staðinn út af fyrir sig, eigin umsjónaraðila og einstaka fegurð svörtu strandarinnar.
Hvort sem það er undir miðnætursól eða norðurljósum verður dagurinn persónulegur og ógleymanlegur.
Algengar spurningar
Hvað gerir Black Sand Hotel að einstökum brúðkaupsstað?
Black Sand Hotel er eitt fárra hótela á Íslandi þar sem hægt er að gifta sig á svörtu ströndinni og halda glæsilega veislu innandyra, allt á sama stað.
Er morgunverður innifalinn?
Já, morgunverðarhlaðborð er innifalið í allri gistingu.
Sjáið þið um skipulag brúðkaupsins?
Já. Teymið okkar heldur utan um allt, frá samskiptum við þjónustuaðila og skreytingum að veitingum og framkvæmd, svo dagurinn gangi snurðulaust fyrir sig.
Bjóðið þið upp á akstur frá Reykjavík?
Já, hægt er að panta einkaakstur gegn aukagjaldi.
Hve marga gesti getur hótelið tekið á móti?
Viðburðarýmið tekur allt að 150 gesti og í 79 herbergjum og svítum er gisting fyrir 158.
Get ég breytt bókun eða afbókað?
Um brúðkaup og hópa gilda sérstakir skilmálar sem samið er um við söludeildina. Hafðu samband á sales@blacksandhotel.is.
Bjóðið þið upp á veitingar og barþjónustu?
Já. Eldhúsið okkar býður sérsniðna matseðla, smökkun og fulla barþjónustu, meðal annars kokteila og vínpörun.
Hentar hótelið börnum?
Já, fjölskyldur eru hjartanlega velkomnar. Barnarúm eru í boði og í völdum herbergjum eru svefnsófar fyrir börn allt að 16 ára. Einnig er hægt að fá samliggjandi herbergi fyrir fjölskyldur sem vilja meira rými.
Hvernig byrja ég að skipuleggja brúðkaup á Black Sand Hotel?
Hafðu samband við brúðkaupsteymið okkar til að ræða dagsetningar, fjölda gesta og hugmyndir ykkar. Við leiðum ykkur í gegnum hvert smáatriði, frá skipulagi til ferða gesta.
Getum við gift okkur löglega á Íslandi?
Já. Ísland tekur vel á móti pörum hvaðanæva úr heiminum, líka samkynja pörum, og erlendir ríkisborgarar geta gengið í hjónaband hér. Fyrir athöfnina þarf að ganga frá nokkrum gögnum, meðal annars hjá sýslumanni. Brúðkaupsteymið okkar aðstoðar ykkur svo þið getið einbeitt ykkur að deginum sjálfum.