Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Þar sem Ölfusá mætir hafinu

Í kvöld á Black Sand

Sólsetur
19:05
Veitingastaðurinn ÓMUR
18:00 til 21:00
Barinn
Opinn til 23:00
Hotel Selection, MICHELIN Guide 2026

Black Sand í MICHELIN Guide 2026

“In this country luxury is always tempered by tasteful understatement, which is certainly the vibe at Black Sand Hotel.”
Lesa meðmæli MICHELIN Guide

79 herbergi og svítur

Ósar árinnar eða opið haf

Útsýnið úr öllum herbergjum fangar ósa Ölfusár eða Atlantshafið svo langt sem augað eygir.

Sjá öll herbergi og svítur

40 mínútur frá Reykjavík

Upplifðu annan heim og algjöra ró, skammt frá höfuðborgarsvæðinu.

Gefðu þér tíma. Áin líður áfram fyrir utan gluggann, flóð og fjara skiptast endalaust á og hér þarf ekkert að gera annað en að njóta dvalarinnar.

Black Sand Hotel
  • Þingvellir40 mín.
  • Geysir70 mín.
  • Kerið25 mín.
  • Reykjavík40 mín.
  • Keflavík60 mín.
Gestir við gluggaborð á ÓMI, Atlantshafið fyrir utan
Forréttur á ÓMI

Veitingastaðurinn ÓMUR

Framúrskarandi matargerð og ferskasta hráefnið

Hugi Rafn Stefánsson yfirkokkur, tvöfaldur gullverðlaunahafi á Ólympíuleikunum í matreiðslu, færir gesti inn í heim norræna eldhússins undir frönskum áhrifum. Hráefnið er það allra ferskasta sem völ er á hverju sinni og flest er sótt úr nánasta umhverfi. Hafið, suðurströndin og sveitin í kring leika þannig stórt hlutverk á matseðlinum allt árið.

Morgunverður
07:00 til 10:00
Kvöldverður
18:00 til 21:00
Barinn
13:00 til 23:00
Norðurljós yfir ströndinni við hótelið

September til apríl

Norðurljós á næturhimninum

Hótelið gæti varla verið betur staðsett þegar kemur að norðurljósum, enda er ljósmengunin engin. Móttakan er á vaktinni og lætur vita ef norðurljósin birtast.

Sjá norðurljósaspána
Svartur sandur og brim á Óseyrartanga

Óseyrartangi

Við hlökkum til að taka á móti þér

Black Sand Hotel er á Óseyrartanga, þar sem Ölfusá, vatnsmesta á landsins, rennur til hafs.

Hótelið var opnað árið 2026. Þar eru 79 herbergi og veitingastaðurinn ÓMUR, og gert er ráð fyrir að heilsulind hótelsins opni síðla árs 2026.

Black Sand Hotel er í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, og Þorlákshöfn, Eyrarbakki og Stokkseyri eru öll í innan við 20 mínútna fjarlægð.