Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Allar sögur · Ferðaráð · 9. febrúar 2026

Leyndar perlur á Gullna hringnum

Leyndur viðkomustaður á Gullna hringnum

Gullni hringurinn er þekktastur fyrir þrjá staði: Þingvelli, hverasvæðið við Geysi og Gullfoss. Við mælum með að þú gefir þér tíma á þeim öllum, en á svæðinu leynast líka fjölmargir aðrir staðir sem vert er að heimsækja. Sumir eru vissulega komnir á kortið, en þeir fá mun færri gesti en stóru staðirnir þrír. Hér eru nokkrar hugmyndir að stöðum sem gaman er að skoða í dagsferð frá Black Sand Hotel.

Brúarhlöð

Ísland er fullt af gljúfrum, en mörg þeirra eru afskekkt og torsótt. Brúarhlöð eru ein af gleymdu perlum Gullna hringsins og samt auðfundin. Þetta þrönga gljúfur er í Hvítá, sömu á og Gullfoss fellur um, en fær aðeins brot af gestunum sem sækja fossinn heim. Hér er jarðfræðin í aðalhlutverki: áin hefur sorfið botninn og bakkana og mótað digra stöpla og lága kletta úr móberginu. Vatnið þrengir sér í gegnum skarðið, stundum á miklum hraða, og staðurinn hentar því jafnt þeim sem vilja fara í flúðasiglingu og göngufólki sem vill njóta ósnortinnar náttúru.

Hellisbúarnir í Laugarvatnshellum

Víða um heim hefur fólk leitað skjóls í hellum, fyrir árásum eða óblíðri veðráttu. Laugarvatnshellar í hjarta Gullna hringsins eru sérstakir að því leyti að fólk bjó sér þar heimili. Uppruninn er á huldu, en ein kenningin er sú að keltneskir munkar hafi nýtt hellana strax í upphafi byggðar. Hitt er víst að þar var búið fram á síðustu öld. Eftir að hellarnir höfðu öldum saman verið nýttir sem fjárskjól fluttu hjónin Jón Þorvarðsson og Vigdís Helgadóttir í annan þeirra árið 1918 og bjuggu þar í fjögur ár. Hellirinn hefur verið gerður upp svo gestir fái tilfinningu fyrir því hvernig lífið var þar. Leiðsögnin tekur aðeins 25 mínútur og auðvelt er að koma henni fyrir í dagsferðinni.

Brúarfoss og fleiri fossar

Ef Gullfoss heillaði þig er gott að vita að á svæðinu eru fleiri fossar sem vert er að skoða. Brúarfoss er sífellt vinsælli og er sérstaklega eftirminnilegur fyrir skærbláan lit vatnsins. Vestast á svæðinu, í Mosfellsdal, eru Helgufoss og Tröllafoss. Við Helgufoss er mosavaxið hraun og vinsælt að baða sig, en Tröllafoss er utan alfaraleiðar og hentar þeim sem vilja vera í friði. Í laxveiðiánni Laxá í Kjós er Þórufoss, örfáar mínútur frá vegi 36. Við Faxa í Tungufljóti bætir breiddin upp hæðina, þar sem vatnið steypist fram af einni brún.

Kerið

Talið er að Kerið hafi myndast fyrir um 3000 árum, þó að sumar heimildir telji það töluvert eldra. Stundum er það ranglega kallað sprengigígur, en rannsóknir benda til þess að það hafi öllu heldur myndast þegar tæmt kvikuhólf eldstöðvar féll saman. Hvað sem því líður er gígurinn tilkomumikil sjón, um 55 metra djúpur og 170 metrar í þvermál. Margir ganga hringinn eftir gígbarminum, en þegar aðstæður leyfa er líka hægt að ganga niður að vatnsbakkanum. Rauði liturinn í berginu vitnar um járnið í því, og skærblái liturinn á steinefnaríku vatninu í botninum stingur fallega í stúf við umhverfið. Grasgræn gróðurþekjan í hlíðunum fullkomnar svo myndina. Kerið er kannski ekki jafn falin perla og áður, en gestafjöldinn er þó hvergi nærri á við stóru staðina þrjá og því á það enn fyllilega heima á þessum lista.

Friðheimar

Við fyrstu sýn virðist tómatabú ólíklegur áfangastaður, en Friðheimar eru einn skemmtilegasti viðkomustaðurinn á Gullna hringnum. Kaldir og dimmir vetur og svöl sumur eru ekki kjöraðstæður fyrir tómatarækt, en hér er jarðhitinn nýttur til að hita gróðurhúsin. Þú getur skoðað gróðurhúsið og séð hvernig ræktunin fer fram, og líka borðað hádegismat. Pantaðu endilega tómatsúpuna og fáðu þér svo tómatís á eftir. Friðheimar eru hluti af sumum skipulögðum ferðum og því ekki lengur leyndarmál, en þar er þó mun rólegra en á fjölsóttustu stöðunum.

Efsti-Dalur

Þrátt fyrir veðrið eru Íslendingar miklir ísunnendur, og hér er góð afsökun til að gera vel við sig. Í stað þess að fara í ísbúð á Selfossi eða í Reykjavík (eða bara líka) er tilvalið að kíkja í Efsta-Dal. Þar er stundaður kúabúskapur og ísinn, einn sá besti á svæðinu, er gerður úr mjólk frá kúm búsins. Hvort sem þú velur vanillu, súkkulaði eða árstíðarbragð finnurðu rjómabragðið vel. Í Efsta-Dal er líka boðið upp á hestaferðir í júní, júlí og ágúst.

Secret Lagoon

Jarðböð eru vinsæl, bæði á Gullna hringnum og utan hans. Laugarvatn Fontana er fjölsóttast á svæðinu, en ef þú hefur gaman af sögu er Secret Lagoon, eða Gamla laugin á Flúðum, góður kostur. Hún er elsta laug svæðisins og notalega hrá. Vatnið kemur úr hver í næsta nágrenni og þú getur fylgst með Litla-Geysi gjósa á meðan þú slakar á í heitu vatninu. Haustið 2025 bættist Laugarás Lagoon við, íburðarmeiri laug í anda Sky Lagoon og Bláa lónsins. Hún er enn tiltölulega fáfarin, svo það er tilvalið að prófa hana í dvöl á Black Sand Hotel.

Skoða laus herbergi