Allar sögur · Blogg · 13. maí 2026
Fossar á Suðurlandi sem vert er að sjá

Á Suðurlandi eru margir af fallegustu fossum landsins. Meðfram ströndinni steypast ár fram af klettabrúnum og renna um þröng gljúfur, og margir fossanna eru rétt við hringveginn og því auðvelt að stoppa við þá.
Hvort sem þú leitar að góðum myndastöðum, stuttum gönguleiðum eða vilt einfaldlega njóta náttúrunnar sýna fossarnir landið frá sinni fegurstu hlið. Hér eru fossarnir á Suðurlandi sem vert er að sjá.
1. Seljalandsfoss
Seljalandsfoss er einn þekktasti foss landsins. Hann fellur um 60 metra fram af klettabrún sem eitt sinn markaði strandlínuna og er rétt við hringveginn.
Það sem gerir hann sérstakan er stígurinn sem liggur á bak við fossinn. Þaðan er útsýni gegnum vatnið yfir tún og fjöll, upplifun sem gleymist seint. Vegna úðans er vatnsheldur fatnaður nauðsynlegur.
2. Skógafoss
Skógafoss steypist breiður og kraftmikill fram af hárri klettabrún og er einn tilkomumesti foss Suðurlands.
Þú getur staðið nálægt fossinum og fundið úðann, eða gengið upp rúmlega 500 þrep við hlið hans að útsýnisstöðum fyrir ofan. Á sólríkum dögum myndast oft regnbogi í úðanum.
3. Gljúfrabúi
Gljúfrabúi leynist í þröngu gljúfri, stutt frá Seljalandsfossi. Þrátt fyrir nálægðina við einn vinsælasta foss landsins er þar yfirleitt rólegt.
Til að komast að honum stígurðu út í grunnan læk og gengur inn í gljúfrið. Þar er fossinn að hluta falinn á bak við klettaveggi, kyrrlátur og afskekktur.
4. Kvernufoss
Kvernufoss er nálægt Skógum og þangað liggur stutt gönguleið frá Skógasafni. Margir aka fram hjá á leið að Skógafossi og því er þar yfirleitt friðsælt.
Fossinn rennur um þröngt gljúfur með mosavöxnum klettum og eins og við Seljalandsfoss er hægt að ganga á bak við hann. Góður viðkomustaður ef þú vilt rólegri upplifun.
5. Svartifoss
Svartifoss er í Vatnajökulsþjóðgarði, í Skaftafelli. Hann er þekktastur fyrir stuðlabergið sem rammar hann inn og var innblástur að Hallgrímskirkju.
Dökkar, sexstrendar súlurnar mynduðust þegar hraun kólnaði og dróst saman. Að Svartafossi er nokkur ganga um fallegt landslag, svo leiðin er hluti af upplifuninni. Hann er austar en flestir fossarnir á listanum en vinsæll hjá þeim sem halda lengra austur.
6. Háifoss
Háifoss er einn hæsti foss landsins og steypist ofan í djúpt gljúfur. Hann er afskekktari en fossarnir við ströndina og minna sóttur, og best er að heimsækja hann á sumrin þegar færðin er betri.
7. Gullfoss
Gullfoss er einn frægasti foss landsins og einn helsti viðkomustaðurinn á Gullna hringnum. Hann fellur í tveimur þrepum ofan í þröngt gljúfur með miklum krafti og úða.
Útsýnispallarnir gefa ólík sjónarhorn á fossinn. Búast má við að blotna, svo regnjakki kemur sér vel.
8. Öxarárfoss
Öxarárfoss er á Þingvöllum, sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Fossinn fellur fram af hraunbrún ofan í hyl, umkringdur hamraveggjum. Leiðin að honum liggur um Almannagjá, þar sem flekaskilin sjást vel.
Á Þingvöllum mætast saga og jarðfræði, og Öxarárfoss er góð viðbót við dagsferð um Gullna hringinn.
9. Brúarfoss
Brúarfoss er frægur fyrir skærbláan litinn á vatninu og er einn litríkasti foss Suðurlands.
Áður þurfti um tveggja klukkustunda göngu hvora leið að Brúarfossi, en nú er bílastæði í um fimm mínútna göngufjarlægð.
10. Urriðafoss
Urriðafoss er vatnsmesti foss landsins. Það er ekki hæðin sem heillar heldur vatnsmagnið og krafturinn.
Þar steypist Þjórsá, lengsta á landsins, fram af breiðri klettabrún. Þrátt fyrir stærðina er Urriðafoss minna sóttur en margir þekktari fossar Suðurlands.
11. Gluggafoss
Gluggafoss, einnig kallaður Merkjárfoss, dregur nafn sitt af bergmyndunum sem minna á glugga. Fossinn skiptist í nokkrar bunur: neðst eru þrír gluggalaga fossar og einn hár foss fyrir ofan.
Auðvelt er að komast að honum og hann sést raunar beint frá veginum.
12. Hjálparfoss
Hjálparfoss er tveir fossar sem falla hlið við hlið í sameiginlegan hyl. Hraunið í kring, úr Heklugosum, myndar skemmtilega andstæðu við hvítfyssandi vatnið. Hann er inn til landsins og því friðsælli en margir fossar nær ströndinni.
Frá bílastæðinu er stutt ganga að hylnum. Á veturna er snjór yfir öllu og litlir ísjakar fljóta í hylnum.
13. Stjórnarfoss
Stjórnarfoss er þekktur fyrir mjúka og ávala lögun. Hann er rétt við hringveginn og þar er sjaldan margmenni, sem gerir hann að rólegum viðkomustað.
14. Fagrifoss
Fagrifoss ber nafn með rentu: tvær um 80 metra háar bunur falla niður mosavaxinn klettavegg. Afskekkt staðsetningin heldur gestafjöldanum í lágmarki.
Fossinn er við fjallveginn F206, svo best er að fara þangað á sumrin á fjórhjóladrifnum bíl.
15. Ægissíðufoss
Ægissíðufoss er lindarfoss með tæru vatni og jöfnu rennsli allt árið. Bílastæði er stutt frá og gönguleið liggur frá Hellu meðfram Ytri-Rangá fyrir þau sem vilja lengri göngu.
Rólegur staður til að staldra við á fossaferð um Suðurland.
Besti tíminn til að skoða fossana
Fossarnir eru aðgengilegir allt árið en hver árstíð hefur sinn svip.
Sumar: Besta aðgengið, langir og bjartir dagar og yfirleitt góð færð, bæði við ströndina og inn til landsins.
Vor: Mikið vatn í leysingum og fyrstu blómin láta sjá sig.
Haust: Færri ferðamenn, mjúk birta til myndatöku og haustlitir.
Vetur: Frosið landslag, ísmyndanir og möguleiki á að sjá norðurljósin á heiðskírum kvöldum.
Athugaðu alltaf veður og færð áður en þú leggur af stað, sérstaklega utan sumarsins.
Gisting nálægt fossunum
Það er þægilegt að gista á Suðurlandi þegar fossarnir eru skoðaðir. Þeir dreifast um svæðið og góð bækistöð hjálpar þér að blanda saman útivist og hvíld.
Black Sand Hotel er kyrrlát bækistöð við svarta sandströnd og opið haf, og þangað er gott að koma eftir fossadaginn.
Eftir dag við fossana bíða:
Notaleg herbergi í skandinavískum stíl
Kyrrð og náttúra allt um kring
Kvöldverður á ÓMI á hótelinu
Heilsulind við hafið, sem opnar undir lok árs 2026
Gisting við suðurströndina sameinar þægindi og kyrrð og gerir ferðina enn betri.
Hagnýt ráð fyrir fossaskoðun á Suðurlandi
Fossarnir eru hápunktur hverrar ferðar um Suðurland, en aðstæður geta breyst hratt. Smá undirbúningur gerir upplifunina öruggari og þægilegri, á hvaða árstíma sem er.
Hafðu þetta í huga:
Klæddu þig í vatnsheldan fatnað og trausta skó: Úðinn er mikill við marga fossa og stígar geta verið blautir og sleipir, jafnvel í góðu veðri.
Verndaðu myndavélina og símann: Vatnshelt hulstur eða þurrpoki kemur í veg fyrir skemmdir.
Haltu þig á merktum stígum: Stígarnir vernda bæði gesti og viðkvæma náttúru og það getur verið hættulegt að fara út af þeim.
Farðu varlega við brúnir og blauta kletta: Klettar og árbakkar geta verið ótraustir og sleipir af úða.
Athugaðu færð og veðurspá daglega: Veður breytist hratt og sumir vegir geta verið lokaðir.
Gefðu þér tíma fyrir óvænt stopp: Á Suðurlandi borgar sig að hafa tíma, því útsýnið kemur oft á óvart.
Náttúra Íslands er kraftmikil og óútreiknanleg, og einföld varúð tryggir góða upplifun við fossana.
Fossar Suðurlands
Frá háum hamraveggjum til falinna gljúfra sýna fossarnir á Suðurlandi landið í sinni tilkomumestu mynd. Hvort sem þú gengur á bak við Seljalandsfoss eða dáist að stuðlaberginu við Svartafoss er hver viðkomustaður eftirminnilegur, og rólegri fossarnir bæta friðsælli hlið við ferðina.
Með góðu skipulagi og þægilegri bækistöð er Suðurland kjörið svæði til að njóta fossanna.
Algengar spurningar um fossa Suðurlands
Hver er fallegasti foss landsins?
Seljalandsfoss og Skógafoss eru oft taldir meðal fallegustu fossa landsins. Báðir eru rétt við hringveginn og því auðvelt að stoppa við þá þegar þú skoðar Suðurland.
Hvaða foss er kallaður „Golden Falls“ á ensku?
Gullfoss, sem á ensku er kallaður „the Golden Falls“, er einn frægasti foss landsins. Hann er einn helsti viðkomustaðurinn á Gullna hringnum og auðvelt að heimsækja hann allt árið.
Er Gullfoss þess virði að skoða?
Já, Gullfoss er einn tilkomumesti foss landsins, þekktur fyrir stærð og kraft, og útsýnispallarnir gera hann aðgengilegan flestum.
Á bak við hvaða foss er hægt að ganga?
Við Seljalandsfoss geturðu gengið á bak við fossinn og séð hann frá einstöku sjónarhorni. Stígurinn getur verið sleipur, svo vatnsheldur fatnaður og góðir skór eru ráðlagðir.
Má synda í fossum á Íslandi?
Nei, ekki er mælt með því vegna kulda, straums og slysahættu. Vatnið getur verið hættulegt, jafnvel á sumrin.
Er hægt að heimsækja fossa Suðurlands á veturna?
Já, margir fossanna eru aðgengilegir á veturna og þá eru þeir oft frosnir og tilkomumiklir. Aðstæður breytast hratt, svo fylgstu vel með færð og veðri.
Er ókeypis að heimsækja fossa Suðurlands?
Flestir fossar á Suðurlandi eru opnir öllum og ókeypis. Á sumum vinsælum stöðum er bílastæðagjald sem stendur undir viðhaldi á aðstöðunni.

