Allar sögur · Blogg · 2. júní 2026
Ölfus: hvað er hægt að sjá og gera

Ölfus er strandsveit á Suðurlandi og góð bækistöð. Svartar sandstrendur, jarðhitasvæði og sjávarklettar: hér er náttúran nálæg og óspillt.
Ef þú ert að skipuleggja ferð um Suðurland er Ölfus vel þess virði að gefa sér tíma fyrir. Hvort sem þú leitar að afþreyingu eða rólegri bækistöð úti í náttúrunni hefur svæðið hvort tveggja upp á að bjóða.
Hvar er Ölfus?
Sveitarfélagið Ölfus er á Suðurlandi, á milli Reykjavíkur og Selfoss. Það liggur við hringveginn og því er auðvelt að komast þangað á bíl eða með Strætó (leið 51). Svæðið er líka hentugur viðkomustaður eða bækistöð fyrir ferðir um suðurströndina.
Svæðið afmarkast af Ölfusá í austri og Hellisheiði í vestri. Þar mætast hraun, strönd og jarðhiti.
Í Ölfusi búa rétt rúmlega 2.000 manns og innan þess eru nokkur smærri byggðarlög, þar á meðal:
Þorlákshöfn: Helsti bærinn í sveitarfélaginu, þekktur fyrir útgerð, höfnina og ferjusiglingar til Vestmannaeyja.
Árbæjarhverfi: Rólegt íbúðahverfi ofar í landi við Ölfusá.
Kotströnd: Lítið byggðarlag við þjóðveg 1, þar sem Kotstrandarkirkja stendur.
Hveragerði er sjálfstætt sveitarfélag en liggur landfræðilega inni í miðju Ölfusi. Blómabærinn er þekktur fyrir gróðurhúsin og gufuna sem stígur upp úr jörðinni.
Skemmtileg staðreynd: Svæðið er líka þekkt fyrir Icelandic Glacial vatnið, sem kemur úr lind í Ölfusi þar sem hraunið síar vatnið náttúrulega.
Það helsta að sjá í Ölfusi
Í Ölfusi mætast hraun, strönd og kyrrlát náttúra. Þessir staðir sýna fjölbreytnina vel og eru þess virði að skoða í rólegheitum.
1. Hraunhellar og hraunbreiður
Svæðið er mótað af eldvirkni. Hraunbreiður teygja sig um landið og skapa úfið og ósnortið landslag. Einn af hápunktunum er Raufarhólshellir, þar sem þú gengur um göng sem rennandi hraun mótaði.
Annað merkilegt kennileiti er Leitahraun, norðvestur af Þorlákshöfn. Það rann fyrir um 5.000 árum og breiðir úr sér um landslagið með dökku, úfnu yfirborði sem fornar goshrinur mótuðu. Í hrauninu er Arnarker, 516 metra langur hraunhellir sem gengið er niður í um hringstiga, og á veturna geta myndast þar ísmyndanir.
2. Kyrrlátar svartar sandstrendur
Í Ölfusi eru svartar sandstrendur þar sem mun færri eru á ferli en á frægari stöðum eins og í Reynisfjöru. Ströndin er opin og róleg, með víðu útsýni yfir Atlantshafið, og hentar vel fyrir langar gönguferðir, ljósmyndun eða bara til að njóta sjávarloftsins.
Meðal stranda á svæðinu eru:
Þorlí: Fjara við Þorlákshöfn, þekkt fyrir góðar aðstæður til brimbrettaiðkunar og opið útsýni yfir hafið.
Hafnarskeið: Á mjórri landræmu milli Ölfusár og sjávar.
Víðisandur: Á mjórri ræmu milli Hlíðarvatns og sjávar, kyrrlát og falleg og sjaldan margir á ferli.
3. Jarðhitasvæði og heitar laugar
Jarðhitinn er eitt helsta einkenni Ölfuss. Gufa sem stígur upp úr jörðinni, steinefnaríkur jarðvegur og heitt vatn blasa víða við.
Hér eru nokkur jarðhitasvæði í Ölfusi og nágrenni:
Hveradalir: Rétt við hringveginn, með gufuaugum, litríkri jörð og virkum jarðhita.
Reykjadalur: Þekktur fyrir heitu ána, þar sem hægt er að ganga upp dalinn og baða sig í volgu vatninu.
Hveragarðurinn: Í Hveragerði, þar sem þú kemst í návígi við jarðhitann í manngerðu umhverfi.
Hverahlíð: Rólegri kostur fyrir þau sem vilja kyrrlátara jarðhitasvæði.
Ábending: Ef þú vilt vita meira um hvernig jarðvarminn er nýttur er Jarðhitasýningin stutt og fróðleg viðkoma.
4. Vitar og sjávarklettar
Vindbarðir klettar, dökkt hraungrýti og opið útsýni yfir Atlantshafið einkenna ströndina í Ölfusi, og andstæður lands og sjávar eru sérstaklega fallegar við sólarupprás og sólsetur.
Við ströndina standa Hafnarnesviti og Selvogsviti, látlaus kennileiti með víðu útsýni yfir hafið. Nálægt Þorlákshöfn hefur eldvirknin mótað tilkomumikla hraunkletta við sjóinn, og hraunboginn nálægt landeldisstöðinni Thor er sérstakt og fallegt kennileiti.
5. Menning og saga
Í Ölfusi eru líka litlar kirkjur og sögustaðir. Þeir láta lítið yfir sér en segja sögu svæðisins og fólksins sem þar bjó.
Meðal helstu staða eru:
Kögunarhóll: 61 metra hár móbergshóll sem sagður er geyma skip Ingólfs Arnarsonar landnámsmanns.
Herdísarvík: Afskekkt strandsvæði, þekkt fyrir sögu sína, gamla bæjarstæðið og tengsl við íslenskar þjóðsögur.
Strandarkirkja: Ein frægasta kirkja landsins, reist 1888 (og síðar endurbætt), löngum tengd sjófarendum og þjóðtrú.
Kotstrandarkirkja: Lítil sveitakirkja frá 1909, þekkt fyrir tvær gamlar kirkjuklukkur og altaristöflu eftir Örlyg Sigurðsson.
Það besta að gera í Ölfusi
Fyrir utan hefðbundna skoðunarstaði er margt hægt að gera í Ölfusi til að upplifa landslagið í návígi, hvort sem þú vilt útivist og ævintýri eða rólegt rölt.
1. Gönguferðir og hjólreiðar
Opið landslag og stígar meðfram ströndinni gera Ölfus að góðum stað til að ganga og hjóla. Leiðirnar spanna allt frá léttu rölti við ströndina að lengri ferðum um hraun og hlíðar.
Meðal vinsælla gönguleiða í Ölfusi eru:
Heilsustígurinn í Þorlákshöfn: 3,8 km stígur með æfingastöðvum sem hefst og endar við sundlaugina í Þorlákshöfn.
Reykjadalur og Hengilssvæðið: Eitt vinsælasta göngusvæðið í nágrenninu, með um 125 km af leiðum við allra hæfi.
Selvogur við Þorlákshöfn: Um 15 km falleg leið með útsýni yfir hafið og sjávarklettana.
Alviðra við Sogið: Stutt en nokkuð brött leið upp á Ingólfsfjall, sem er 551 m hátt.
2. Hestaferðir og fjórhjólaferðir
Að ríða íslenskum hesti yfir svartan sand eða græn tún er eftirminnileg leið til að kynnast svæðinu. Íslenski hesturinn er geðgóður og ganggóður og hentar jafnt byrjendum sem vönu hestafólki.
Fyrir þau sem vilja meiri hraða fara fjórhjólaferðir um úfið landslag og strandlendi og ná til afskekktari hluta svæðisins.
3. Brimbretti
Þorlákshöfn er einn af bestu brimbrettastöðum landsins. Aðstæður geta verið krefjandi, sjórinn kaldur og öldurnar kröftugar, en staðurinn dregur að sér brimbrettafólk víða að. Við Þorlí eru öldurnar sérstaklega jafnar og góðar.
4. Fuglar og selir
Strandlengjan og klettarnir í Ölfusi iða af fuglalífi. Eftir árstíma sérðu fugla verpa í klettunum eða fljúga yfir fjörunni og hafinu.
Á sumum stöðum við ströndina, sérstaklega nálægt Strandarkirkju, liggja selir oft á hraunklöppunum. Gættu þess bara að halda góðri fjarlægð.
5. Sjávarfang úr héraði
Í Þorlákshöfn bera veitingastaðir fram látlausa rétti úr fersku íslensku hráefni, gjarnan pönnusteiktan þorsk, bleikju og humar, og sígilda rétti eins og fiskisúpu og plokkfisk.
6. Norðurljósin
Á veturna er Ölfus góður staður til að sjá norðurljósin á Íslandi. Lítil ljósmengun og opinn himinn gefa góð skilyrði þegar spáin er hagstæð. Útsýnisstaðurinn við Ölfusá er ekki bara fallegur staður til að horfa yfir ána, þar er líka víður og óheftur himinn, tilvalinn til norðurljósaskoðunar.
Gisting í Ölfusi
Með því að gista í Ölfusi upplifir þú Suðurland í rólegri takti. Svæðið hentar vel þeim sem vilja friðsæla dvöl úti í náttúrunni, með stutt í helstu perlur svæðisins.
Hér ertu nálægt svörtum sandströndum, hraunbreiðum og víðu útsýni yfir hafið, en laus við mannmergðina á fjölsóttari stöðum Suðurlands.
Black Sand Hotel endurspeglar þetta jafnvægi náttúru og þæginda. Hótelið stendur við ströndina í kyrrlátu umhverfi, þar sem gott er að hvílast eftir viðburðaríkan dag.
Á Black Sand Hotel eru líka:
Herbergi með útsýni yfir hafið eða ána í skandinavískum stíl
Veitingastaðurinn ÓMUR og barinn, þar sem hráefni úr héraði er í forgrunni
Heilsulind fyrir slökun og vellíðan
Hótelið er líka þægileg bækistöð til að skoða Suðurland, með fjölda náttúruperla í stuttri akstursfjarlægð.
Ósnortin fegurð Ölfuss
Í Ölfusi mætast mörg helstu einkenni íslenskrar náttúru, allt frá hraunbreiðum og heitum laugum til kyrrlátra svartra sandstranda. Það sem greinir svæðið frá öðrum er rólegt og opið andrúmsloftið, þar sem þú getur skoðað þig um án mannfjöldans. Og fyrir utan náttúruna og útivistina er svæðið ríkt af sögu og menningu.
Hvort sem þú átt leið hjá eða staldrar lengur við er Ölfus afslöppuð leið til að upplifa Suðurland.
Algengar spurningar
Hvað þýðir Ölfus?
Ölfus er heiti sveitarfélags á Suðurlandi. Nafnið er líka notað um Ölfusá og um lindina í Ölfusi sem Icelandic Glacial vatnið kemur úr.
Fyrir hvað er Ölfus þekkt?
Ölfus er þekkt fyrir strandlengjuna, hraunbreiðurnar, jarðhitann og rólegar svartar sandstrendur, og fyrir friðsæld miðað við fjölsóttari staði á Suðurlandi.
Hver er hin fræga lind í Ölfusi?
Lindin varð til eftir eldgos fyrir meira en 5.000 árum. Hún endurnýjast með regnvatni og snjóbráð sem hraunið síar og er uppspretta Icelandic Glacial vatnsins.
Er Ölfus eldfjall?
Nei, Ölfus er ekki eldfjall, en svæðið er eldvirkt og umkringt hraunbreiðum og jarðmyndunum sem eldri gos mótuðu.
Hversu langt er Ölfus frá Reykjavík?
Ölfus er í um 45 til 60 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, eftir því hvert á svæðinu ferðinni er heitið.
Sjást norðurljósin í Ölfusi?
Já, Ölfus er góður staður til að sjá norðurljósin á veturna. Lítil ljósmengun og opið landslag gefa góð skilyrði.
Eru svartar sandstrendur í Ölfusi?
Já, í Ölfusi eru nokkrar svartar sandstrendur. Þorlí er sú vinsælasta, sérstaklega hjá brimbrettafólki. Strendurnar eru yfirleitt rólegri en þær frægustu og henta vel fyrir friðsæla heimsókn.

