Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Allar sögur · Blogg · 27. maí 2026

Þrír dagar á Suðurlandi með Black Sand Hotel sem bækistöð

Á ferð um Suðurland

Gisting á Black Sand Hotel setur margar af þekktustu náttúruperlum Suðurlands í seilingarfjarlægð. Með fossa og svartar sandstrendur allt um kring er svæðið kjörið til að skoða sig um á daginn og slaka á á kvöldin.

Þessi ferðaáætlun um Suðurland sýnir hvernig verja má þremur rólegum dögum með hótelið sem upphafspunkt. Hún sameinar Gullna hringinn, heilan dag austur að jöklunum og þekktustu staði suðurstrandarinnar. Áherslan er á viðráðanlegan akstur, eftirminnileg stopp og tíma til að njóta náttúrunnar án asa.

Með Black Sand Hotel sem bækistöð verður stutt dvöl að góðri ferð um Suðurland.

Er Black Sand Hotel góð bækistöð fyrir þriggja daga ferð um Suðurland?

Að velja rétta bækistöð er ein mikilvægasta ákvörðunin þegar ferð um Suðurland er skipulögð. Suðurströndin teygir sig langt eftir hringveginum, og ef skipt er um hótel á hverju kvöldi verður ferðalagið fljótt að kapphlaupi.

Með því að gista á Black Sand Hotel geturðu:

  • Notið veitinga á staðnum á ÓMI

  • Slakað á í heilsulind hótelsins, sem opnar undir lok árs 2026

  • Snúið aftur í þægileg herbergi og svítur í skandinavískum stíl

  • Varið minni tíma í að pakka og taka upp úr töskum milli ferða

  • Komist auðveldlega á þjóðveg 1 og að náttúruperlum Suðurlands í klukkustundar fjarlægð eða svo

Þetta hentar sérstaklega vel ef þú kannt að meta róleg kvöld, þægilega gistingu og hægari ferðamáta.

Dagur 1: Gullni hringurinn og Selfoss

Fyrsti dagurinn hentar vel ef þú leggur snemma af stað. Innritun á hótelið er frá kl. 15:00, svo Gullni hringurinn er tilvalinn áður en þú kemur þér fyrir.

Morgunn: Dagsferð um Gullna hringinn

Byrjaðu ferðina á Gullna hringnum, sígildri leið sem segir sögu landsins, jarðfræðinnar og náttúruaflanna.

  • Byrjaðu á Þingvöllum, þar sem gestir geta gengið milli tveggja jarðskorpufleka í víðum sigdal. Svæðið er merkilegt bæði sögulega og jarðfræðilega og býður upp á greiðfæra göngustíga og góða útsýnisstaði.

  • Haltu áfram á hverasvæðið við Geysi, þar sem Strokkur gýs reglulega og þeytir heitu vatni hátt í loft upp. Þangað er aðeins stutt ganga frá bílastæðinu.

  • Næst skaltu heimsækja Gullfoss, einn frægasta foss Íslands. Fossinn er kraftmikill allt árið og aðgengilegur eftir merktum stígum.

    Strokkur gýs á Gullna hringnum.

    Í hádeginu er tilvalið að stoppa á Friðheimum, sem eru þekktir fyrir tómatrétti sem bornir eru fram inni í starfandi gróðurhúsi. Mælt er með að bóka borð, sérstaklega á sumrin.

    Ef tími gefst skaltu heimsækja Kerið, eitt af leynistöðunum á Gullna hringnum. Kerið er litríkt gígvatn og þar er stutt og falleg gönguleið.

    Síðdegi: Innritun á Black Sand Hotel

    Að loknum Gullna hringnum keyrirðu í átt að ströndinni og innritar þig á Black Sand Hotel. Síðdegið er viljandi haft óskipulagt svo þú getir hvílst, komið þér fyrir og notið rólegheitanna eftir annasaman morgun.

    Kvöld: Rölt um Selfoss

    Verðu kvöldinu á Selfossi við Ölfusá, aðeins 14 mínútna akstur frá hótelinu. Farðu í stuttan göngutúr, kíktu í búðir eða fáðu þér kvöldmat á einum af veitingastöðum bæjarins. Rólegt kvöld og mjúk byrjun á ferðalaginu.

    Hvít kirkja á árbakkanum á Selfossi á Suðurlandi.

    Dagur 2: Heill dagur á suðurströndinni

    Annar dagurinn er langur bíltúr og ævintýralegasti hluti ferðarinnar. Best er að fara lengst þennan dag og geyma nálægari staði. Gerðu ráð fyrir löngum akstri, víðáttumiklu landslagi og einhverju fallegasta útsýni landsins.

    Morgunn: Morgunverður á hótelinu og Fjaðrárgljúfur

    Byrjaðu snemma með morgunverði á hótelinu og keyrðu svo austur hringveginn að Fjaðrárgljúfri. Aksturinn tekur tæpar þrjár klukkustundir, svo dagurinn byrjar snemma en það borgar sig. Þú getur stoppað á leiðinni til að taka pásu eða skoða fleiri staði.

    Gljúfrið er mosavaxið og sorfið af jökulvatni. Af útsýnispöllum er vítt útsýni án þess að gangan sé erfið. Gangan eftir gljúfurbrúninni er um 2 km fram og til baka og tekur um 40 mínútur til klukkustund, góð leið til að teygja úr sér áður en haldið er lengra austur.

    Brattar, grænar hlíðar og hlykkjótt á í Fjaðrárgljúfri.

    Síðdegi: Hádegismatur og bátsferð á Jökulsárlóni, og Demantsströndin

    Haltu áfram austur að Jökulsárlóni við Vatnajökulsþjóðgarð, þar sem þú kemst í návígi við jöklana.

    Fáðu þér hádegismat á kaffihúsinu við Jökulsárlón meðan þú bíður eftir bátsferðinni. Úti á lóninu siglirðu á milli ísjaka og á hlýrri mánuðum sjást oft selir. Í ferðinni sérðu lónið í návígi og hvernig ísinn rekur hægt til sjávar.

    Gakktu svo yfir veginn að Demantsströndinni. Þar liggja ísmolar úr lóninu á svörtum sandinum og skilin milli íss, sands og hafs eru sláandi. Margir telja þetta hápunkt ferðarinnar.

    Bátur siglir milli fljótandi ísjaka á Jökulsárlóni á Suðurlandi.

    Kvöld: Til baka á Black Sand Hotel

    Um kvöldið ekurðu vestur á hótelið aftur. Dagurinn felur í sér mikinn akstur, en síbreytilegt landslagið gerir ferðina sjálfa að hluta af upplifuninni, og á leiðinni eru bæir og útsýnisstaðir sem henta vel fyrir stutt stopp.

    Þegar þú kemur aftur á hótelið bíður þín kvöldverður á ÓMI og rólegt kvöld eftir langan dag úti.

    Dagur 3: Þekktustu staðir suðurstrandarinnar

    Síðasti dagurinn snýst um þekktustu staði suðurstrandarinnar. Styttri akstur gerir hann að rólegum lokadegi, og það gefst tími til að njóta fossa, strandar og lítilla þorpa á leiðinni.

    Morgunn: Útritun og fossar

    Eftir morgunverð skráirðu þig út og byrjar daginn á nokkrum af fallegustu fossum Suðurlands.

    Byrjaðu á Seljalandsfossi, þar sem hægt er að ganga á bak við fossinn. Skammt frá er Gljúfrabúi, hálffalinn inni í þröngri gjá.

    Seljalandsfoss undir mjúkbleikum himni á Suðurlandi.

    Haltu áfram að Skógafossi, breiðum og kraftmiklum fossi rétt við veginn. Á björtum dögum myndast oft regnbogar í úðanum. Í stuttri göngufjarlægð er Kvernufoss, rólegri staður umlukinn grænum hlíðum og klettum.

    Síðdegi: Hádegisverður í Vík og svartar sandstrendur

    Keyrðu austur til Víkur í hádegismat. Síðan heldurðu vestur á bóginn og stoppar við nokkrar af þekktustu svörtu sandströndum suðurstrandarinnar.

    Komdu við í Reynisfjöru, sem er þekkt fyrir stuðlaberg og öflugar öldur. Fylgdu alltaf öryggismerkingum og haltu góðri fjarlægð frá sjónum. Haltu svo áfram að Dyrhólaey, þar sem útsýnið yfir ströndina er vítt og brimið hefur mótað tilkomumikinn gatklett.

    Ef tími og aðstæður leyfa er gaman að koma við hjá flugvélarflakinu á Sólheimasandi. Gangan er slétt en löng, svo gerðu ráð fyrir henni út frá tíma, veðri og ferðinni heim. Ef þú vilt sleppa göngunni eru í boði ferðir á breyttum jeppum eða buggy-bílum sem þarf að bóka fyrirfram.

    Leiðin vestur hentar vel ef þú heldur áfram til Reykjavíkur eða á Reykjanes seinna um daginn.

    Yfirgefið flugvélarflak á svartri sandströnd á Suðurlandi.

    Besti tíminn fyrir þriggja daga ferð um Suðurland

    Suðurland er hægt að heimsækja allt árið, en hver árstíð býður upp á ólíka upplifun.

    • Sumarið færir langa birtu, mildara veður og betri færð. Það er kjörið fyrir bíltúra og útivist.

    • Veturinn býður upp á færri ferðamenn, snævi þakið landslag og tækifæri til að sjá norðurljósin. Styttri dagsbirta og veður geta kallað á breytingar á áætluninni.

      Óháð árstíð skaltu athuga færð og veðurspá daglega, sérstaklega utan sumarmánaðanna.

      Ráð fyrir margra daga ferðaáætlun um Suðurland

      Smá skipulagning skilar miklu þegar þú skoðar Suðurland í nokkra daga. Þessi ráð hjálpa til við að gera ferðina þægilega og sveigjanlega.

      • Byrjaðu dagana snemma: Dagsbirtan er takmörkuð utan sumars, og ef þú leggur snemma af stað forðastu mannfjöldann og heldur áætlun.

      • Fylgstu með veðri og færð: Aðstæður geta breyst hratt, svo athugaðu veðurspá og færð á hverjum morgni.

      • Notaðu bílastæðaöpp: Öpp eins og Parka og EasyPark auðvelda þér að finna og greiða fyrir bílastæði á vinsælum stöðum.

      • Hafðu svigrúm í dagskránni: Aukatími gefur svigrúm fyrir veðrabrigði, myndastopp eða óvæntar tafir.

      • Íhugaðu ferðir með leiðsögn: Leiðsögn eykur öryggi og dýpkar upplifunina við krefjandi aðstæður.

      • Veldu hentuga bækistöð við suðurströndina: Að gista á einum stað, eins og Black Sand Hotel, dregur úr akstri og gerir kvöldin afslappaðri.

        Mjúkbleikur himinn yfir Reynisfjöru og Reynisdröngum á Suðurlandi.

        Byrjaðu Suðurlandsferðina á Black Sand Hotel

        Góð ferð um Suðurland sameinar ævintýri og hvíld. Á Black Sand Hotel geturðu notið stórbrotins landslags á daginn og komið aftur í kyrrlátt athvarf við ströndina á hverju kvöldi.

        Hótelið býður þægileg herbergi í skandinavískum stíl, umkringt hrauni og í stuttri fjarlægð frá helstu náttúruperlum Suðurlands. Það er góður grunnur að eftirminnilegri ferð.

        Algengar spurningar um ferðaáætlun um Suðurland

        Þarf ég bíl í þriggja daga ferð um Suðurland?

        Já. Á bíl geturðu farið þína eigin leið og stoppað hvar sem þú vilt. Almenningssamgöngur eru takmarkaðar, sérstaklega að afskekktari fossum og gljúfrum.

        Er Jökulsárlón þess virði?

        Já, Jökulsárlón og Demantsströndin skammt frá veita einstaka sýn á jöklalandslag Íslands. Mörgum þykir þetta eftirminnilegasti staðurinn á Suðurlandi.

        Er auðvelt að ferðast um Suðurland?

        Já. Auðvelt er að rata um Suðurland og margar af þekktustu náttúruperlum landsins eru skammt frá hringveginum.

        Er hægt að fara í þriggja daga ferð um Suðurland að vetri?

        Já, en gott er að hafa svigrúm. Styttri dagsbirta og breytilegt veður geta haft áhrif á aksturstíma og stopp, svo mikilvægt er að athuga færð og veður daglega.

        Hvað á ég að taka með í þriggja daga ferð um Suðurland?

        Taktu með þér fatnað sem hægt er að klæðast í lögum, svo þú getir brugðist við breytilegu veðri. Vatnsheldur yfirfatnaður og góðir gönguskór eru nauðsyn allt árið.

Skoða laus herbergi