Allar sögur · Blogg · 25. mars 2026
Það besta að gera nálægt svörtu ströndum Suðurlands

Svörtu sandstrendurnar á Íslandi eru meðal tilkomumestu stranda heims. Eldvirkni og kraftur hafsins hafa mótað þær, hrjúfar, kyrrlátar og engu líkar. Á suðurströndinni mætast fjörur, klettar, jöklar, fossar og lítil þorp, og svæðið er kjörið fyrir útivist og ævintýri.
Langar þig að skoða þekktustu svörtu strendur landsins? Hér förum við yfir hvar þær eru, hvað er hægt að gera í nágrenninu og hvernig best er að heimsækja þær á öruggan hátt.
Hvar eru bestu svörtu sandstrendurnar?
Svartar sandstrendur eru víða við landið, en þær frægustu og aðgengilegustu eru á suðurströndinni. Dökki liturinn kemur úr gosbergi sem öldurnar hafa mulið niður í þúsundir ára, og eldgos, hraunrennsli og rof halda áfram að móta fjörurnar enn í dag.
Meðal þekktustu svörtu sandstranda suðurstrandarinnar eru:
Reynisfjara, sú frægasta á Íslandi
Víkurfjara, sem teygir sig eftir ströndinni við Vík
Sólheimafjara, þar sem fræga flugvélarflakið er
Demantsströndin, gegnt Jökulsárlóni
Strendurnar einkennast af stuðlabergi, dröngum og víðáttumiklum svörtum sandi á móti hvítu brimi. Margar eru skammt frá hringveginum og sjálfsagðir viðkomustaðir á ferð um Suðurland.
10 góðar hugmyndir nálægt svörtu ströndum Suðurlands
Í kringum svörtu strendurnar er fjölbreytt afþreying, bæði við sjóinn og inn til landsins. Hér eru nokkrar af þeim vinsælustu.
1. Skoðaðu stuðlabergið
Eitt þekktasta kennileitið við svörtu strendurnar eru háir stuðlabergsveggirnir í Reynisfjöru. Súlurnar urðu til þegar hraun kólnaði og dróst saman og mynduðu sexstrenda stuðla sem klæða klettana.
Gefðu þér tíma til að ganga meðfram klettunum og skoða mynstrin í berginu. Undir klettunum er líka Hálsanefshellir, sem kemst að á fjöru. Dökkar súlurnar og hvítt brimið eru sérstaklega mögnuð á skýjuðum dögum.
2. Reynisdrangar
Reynisdrangar rísa þverhníptir úr hafinu og eru meðal þekktustu kennileita Suðurlands. Samkvæmt þjóðsögunni voru þeir tröll sem dagaði uppi og urðu að steini.
Drangarnir sjást best úr Reynisfjöru, þar sem þeir standa rétt undan landi, eða frá Dyrhólaey, þar sem útsýnið yfir strandlengjuna er víðara.
3. Útsýnið frá Dyrhólaey
Dyrhólaey er klettahöfði sem rís yfir svörtu ströndina vestan við Vík. Þaðan sérðu langar strendur, jökla í fjarska og dranga úti fyrir landi.
Á Dyrhólaey bíða þín:
Útsýni af klettabrúninni yfir Reynisfjöru
Stór bergbogi sem hafið hefur sorfið
Viti fremst á klettabrúninni
Á sumrin er svæðið líka þekkt fyrir fuglalíf, þar á meðal lunda í varpi.
4. Fossar suðurstrandarinnar
Nokkrir frægustu fossar landsins eru skammt frá suðurströndinni, og hver þeirra hefur sinn karakter.
Vinsælir viðkomustaðir eru meðal annars:
Seljalandsfoss, þar sem hægt er að ganga á bak við vatnið
Skógafoss, breiður og kraftmikill
Kvernufoss, rólegur foss falinn í þröngu gili
Gljúfrabúi, sem er að hluta falinn á bak við klett
Þessa helstu fossa Suðurlands er auðvelt að heimsækja í sömu ferð og strendurnar.
5. Jöklar og íshellar
Rétt ofan við ströndina teygja skriðjöklar sig niður af hálendinu. Í ferðum með leiðsögn geturðu skoðað ísinn á öruggan hátt með reyndu fólki.
Vinsælt er að fara í jöklagöngu á Sólheimajökli eða í íshellaferð nálægt Kötlu, eftir aðstæðum. Íshellarnir breytast stöðugt og engar tvær ferðir eru eins.
6. Flugvélarflakið á Sólheimasandi
Á Sólheimasandi liggur flak DC-3 flugvélar bandaríska sjóhersins sem nauðlenti þar árið 1973. Enginn slasaðist og skrokkurinn stendur eftir sem sérkennilegt kennileiti á opnum sandinum.
Þangað er löng og slétt ganga, eða skutla yfir sandinn. Veður getur breyst hratt og best er að fara í stilltu veðri.
7. Fjórhjóla- og buggy-ferðir
Viltu meira fjör? Fjórhjóla- og buggy-ferðir með leiðsögn eru önnur leið að flakinu á Sólheimasandi, yfir grunnar ár og sandsléttur við ströndina.
Ferðirnar ná til afskekktra staða með víðu útsýni yfir jökla og strendur. Þær henta yfirleitt byrjendum og byrja á öryggisfræðslu.
8. Á hestbaki á svörtum sandi
Íslenski hesturinn er geðgóður og ganggóður, og reiðtúr eftir svörtum sandi eða slóðum í nágrenninu er friðsæl leið til að njóta landslagsins.
Í kringum Vík eru oft í boði rólegir reiðtúrar í litlum hópum sem henta byrjendum, bæði sumar og vetur.
9. Matur og mannlíf í Vík
Vík er þorpið næst Reynisfjöru og gott stopp á leiðinni austur. Þótt þorpið sé lítið eru þar nokkrir veitingastaðir, kaffihús og útsýnisstaðir.
Þar er hægt að fá íslenskan mat og ferskt sjávarfang og njóta útsýnisins frá kirkjunni á hæðinni yfir ströndina. Góður staður til að hvílast og fá sér bita áður en haldið er áfram í helgarferðina um Suðurland.
10. Siglt milli ísjaka á Jökulsárlóni
Lengra austur, við Vatnajökulsþjóðgarð, er Jökulsárlón, þar sem stórir jakar brotna úr jöklinum og fljóta hægt til sjávar.
Hinum megin við veginn er Demantsströndin, þar sem ísmolar skolast upp á svartan sandinn. Það er ein eftirminnilegasta upplifunin á Suðurlandi að heimsækja báða staðina.
Gisting nálægt svörtu ströndunum
Ef þú gistir nálægt ströndinni geturðu notið hennar þegar fáir eru á ferli, snemma á morgnana og seint á kvöldin.
Black Sand Hotel er vel staðsett nálægt svörtu ströndum Suðurlands og þar eru:
Notaleg herbergi og svítur í skandinavískum stíl
Veitingastaðurinn ÓMUR og barinn, með áherslu á árstíðabundið hráefni
Heilsulind, tilvalin til að slaka á eftir daginn
Stutt í gönguferðir á ströndinni og náttúruperlur í nágrenninu
Hótelið stendur við minna þekkta svarta strönd, svo þú getur alltaf notið strandarinnar fjarri mannmergðinni. Og margar helstu perlur Suðurlands innan við klukkustund frá Black Sand Hotel, svo hótelið er þægileg bækistöð fyrir ferðir um svæðið.
Besti tíminn til að heimsækja svörtu strendurnar
Strendurnar má heimsækja allt árið og hver árstíð hefur sinn sjarma.
Sumar (júní til ágúst): Mildara veður, bjartar nætur og lundinn í varpi
Vor og haust: Færri á ferli og mjúk, síbreytileg birta
Vetur (nóvember til mars): Snævi þakið land, íshellar, dramatískt veður og möguleiki á norðurljósum
Veðrið getur breyst hratt við ströndina, svo það er gott að hafa sveigjanleg plön allt árið.
Öryggisráð á svörtu ströndunum
Svörtu strendurnar eru fallegar en geta verið hættulegar og aðstæður breytast hratt.
Hafðu þetta í huga:
Syntu aldrei í sjónum: Kalt vatn, sterkir straumar og óútreiknanlegar öldur gera sund stórhættulegt.
Varastu ólagið: Stórar öldur geta skollið langt upp á fjöruna án fyrirvara.
Haltu öruggri fjarlægð: Vertu vel frá flæðarmálinu, jafnvel í stilltu veðri.
Snúðu aldrei baki í hafið: Horfðu alltaf í átt til sjávar og vertu á varðbergi.
Fylgstu með veðri og sjávarföllum: Athugaðu veðurspá og sjávarfallatöflur áður en þú heimsækir strandsvæði.
Kynntu þér viðvörunarljósin: Grænt merkir litla hættu, gult aukna hættu og takmarkað aðgengi, og rautt hættulegar aðstæður og lokað svæði.
Vertu á vel búnum bíl: Réttur dekkjabúnaður og varkárni í akstri eru nauðsyn á vegum suðurstrandarinnar á veturna.
Klæddu þig vel, því vindur og særok kæla hratt. Taktu með þér vatn og nesti, líka í stuttar ferðir, ef eitthvað skyldi tefja.
Meira en svartar strendur
Suðurströndin hefur upp á miklu meira að bjóða en fjörurnar. Fossar, jöklar, kyrrlát þorp og opið land bjóða upp á rólegt ferðalag, og svörtu strendurnar njóta sín best sem hluti af stærri ferð um svæðið.
Gefðu þér tíma til að skoða staðina í kring og veldu friðsæla bækistöð nálægt ströndinni. Þannig upplifirðu Suðurland á afslappaðri hátt.
Algengar spurningar um svörtu strendurnar
Má synda á svörtu sandströndum Íslands?
Nei. Sjórinn er ískaldur og sterkir straumar og ólag gera sund stórhættulegt.
Af hverju eru svartar sandstrendur á Íslandi?
Sandurinn er gosberg úr tíðum eldgosum sem hefur með tímanum brotnað niður í svartan sand.
Hver er besta svarta sandströnd Íslands?
Reynisfjara er frægasta svarta strönd landsins, þekkt fyrir stuðlaberg, dranga og stórbrotna umgjörð.
Má taka svartan sand með sér heim?
Nei. Það er óæskilegt og oft bannað að fjarlægja náttúruleg efni, til að vernda umhverfið.
Hvað hefur verið tekið upp á svörtu ströndunum?
Reynisfjara og fleiri svartar strendur hafa birst í ýmsum kvikmyndum og þáttum, meðal annars Game of Thrones og Rogue One: A Star Wars Story.

