Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Allar sögur · Blogg · 3. nóvember 2025

Af hverju eru strendurnar á Íslandi svartar?

Af hverju eru strendurnar á Íslandi svartar?

Á ferð um suðurströndina blasir nokkuð magnað við: í stað gullins eða hvíts sands eru strendurnar kolsvartar og mynda fallegar andstæður við hvítt brim Atlantshafsins. Af hverju eru strendurnar á Íslandi svartar? Svarið liggur djúpt í jörðinni og tengist eldvirkni í milljónir ára.

Hér útskýrum við vísindin á bak við svörtu strendurnar og förum yfir bestu staðina til að sjá þær. Ef þú ætlar að gista við ströndina gerir það ferðina enn skemmtilegri að skilja landslagið.

Vísindin á bak við eldfjallasandinn

Meginástæðan er eldvirkni. Ísland situr á heitum reit þar sem jarðskorpuflekarnir gliðna í sundur, og þess vegna leitar kvika oft upp á yfirborðið. Langmest af berginu á Íslandi er basalt, dökkt og þungt gosberg, ríkt af járni og magnesíum, sem gefa því svartan lit.

Þegar gýs nálægt ströndinni rennur glóandi hraun í kaldan sjóinn. Vatnið kælir hraunið svo hratt að bergið splundrast í ótal smáar agnir, og með tímanum mala öldurnar þær niður í fínan, svartan sand.

Frægar svartar sandstrendur á Íslandi

Svartar strendur eru um allt land, en þær þekktustu eru á suðurströndinni, hver með sinn svip.

Reynisfjara

Öldur skella á svörtu ströndinni í Reynisfjöru á Íslandi.

Reynisfjara, rétt við Vík í Mýrdal, er frægasta strönd landsins. Úr sandinum blasa við háir stuðlabergsveggir, eins og pípur í risastóru orgeli, og úti í hafinu rísa drangar upp úr öldunum.

Uppfært 2026: Eftir mikil óveður í febrúar 2026 hefur Reynisfjara breyst. Sjórinn hefur tekið stóran hluta sandsins, svo hann nær nú oftar upp að klettunum og fjaran er mjórri.

  • Öryggi: Sandsvæðið milli sjávar og kletta er minna en áður, svo mikilvægt er að halda öruggri fjarlægð frá sjónum.

  • Aðgengi: Stuðlabergið og Hálsanefshellir eru nú nær öldunum og það getur verið varasamt að fara að þeim.

  • Ný sjónarhorn: Landbrotið hefur leitt í ljós gamla klöpp og stórgrýti sem lengi var hulið.

Demantsströndin

Ísmolar á víð og dreif á Demantsströndinni á Íslandi.

Demantsströndin er við Jökulsárlón. Ísmolar skolast upp á dökkan sandinn og minna á demanta á svörtu flaueli. Frábær staður fyrir myndir og til að njóta kyrrðarinnar.

Stokksnes

Vestrahorn gnæfir yfir svörtu sandströndina við Stokksnes á Íslandi.

Á Stokksnesi, austarlega á landinu, eru stórar svartar sandöldur með Vestrahorn í baksýn. Kyrrlátur staður, fjarri mesta ferðamannastraumnum.

Af hverju er enginn hvítur sandur?

Flestar strendur heims fá litinn frá muldum skeljum eða kvarsi. Ísland er hins vegar of ungt til að slík efni nái að safnast upp, landið myndast stöðugt í eldgosum og basaltið er alls staðar ríkjandi.

Eru þá engar undantekningar? Á stöku stað, eins og á Ytri-Tungu, er gullinn sandur þar sem muldar skeljar blandast dökku setinu. Slíkir staðir eru þó sjaldgæfir og svarti sandurinn er hið sanna einkenni íslenskra stranda.

Gisting við suðurströndina

Ef þú vilt upplifa svörtu strendurnar er Black Sand Hotel góður kostur. Þegar þú gistir í nágrenninu geturðu séð ströndina við sólarupprás eða sólsetur, þegar birtan lætur svartan sandinn glóa.

Hvað skiptir máli við val á gistingu

Hafðu í huga það sem gerir dvölina eftirminnilega:

  • Herbergi með útsýni yfir hafið: Að sjá Atlantshafið út um gluggann er hápunktur hverrar ferðar.

  • Skandinavísk hönnun: Látlausar, hreinar línur hjálpa þér að slaka á eftir viðburðaríkan dag.

  • Veitingastaður á staðnum: Góður veitingastaður og bar gera kvöldin einföld og þægileg.

  • Heilsulind: Heilsulind eða gufa mýkir þreytta vöðva eftir göngu um hraunið.

    Bókaðu gistingu nálægt Vík eða annars staðar á suðurströndinni til að vera nálægt því helsta, og notaðu dvölina sem bækistöð til að skoða jökla og fossa.

    Löng svört sandströnd við suðurströnd Íslands.

    Skipuleggðu heimsóknina á svörtu strendurnar

    Að standa á svartri strönd er minning sem fylgir þér lengi. Öldugnýrinn og dökkur sandurinn gefa tilfinningu um að vera á annarri plánetu. Hér er gott að hægja á sér og finna kraft náttúrunnar.

    Taktu með þér hlý föt og vatnsheldan jakka, því veðrið við ströndina breytist hratt. Hvort sem þú gistir í notalegri svítu eða látlausu herbergi er íslensk náttúra beint fyrir utan dyrnar.

    Svo, af hverju eru strendurnar svartar? Af því að landið er enn lifandi og síbreytilegt. Hvert sandkorn segir sögu af eldi, ís og tíma.

    Algengar spurningar

    Hvaðan kemur svarti liturinn?

    Sandurinn er úr basalti, dökku gosbergi. Þegar hraun rennur í sjóinn kólnar það hratt og brotnar í smáar agnir, og með tímanum mala öldurnar brotin niður í fínan, svartan sand.

    Af hverju eru engar hvítar sandstrendur á Íslandi?

    Hvítur eða gullinn sandur kemur yfirleitt úr muldum skeljum, kóral eða kvarsi, en slíkt er sjaldgæft á Íslandi. Þar sem stöðugt myndast nýtt hraun er dökkt basalt ríkjandi við flestar strendur landsins.

    Verður svarti sandurinn einhvern tíma hvítur aftur?

    Nei. Basalt heldur dökka litnum. En á Demantsströndinni er svartur sandurinn þakinn glitrandi ís, og á Ytri-Tungu blandast gullinn skeljasandur svörtum sandinum.

    Má taka svartan sand með sér heim?

    Það getur verið freistandi, en best er að skilja sandinn eftir. Á mörgum friðlýstum svæðum, til dæmis á Snæfellsnesi og hluta suðurstrandarinnar, er óheimilt að taka náttúrusýni, til að vernda umhverfið. Og sandurinn sómir sér hvort sem er best í fjörunni.

    Af hverju er Reynisfjara talin svona hættuleg?

    Hættan liggur ekki í sandinum heldur í lögun fjörunnar. Í Reynisfjöru er sjávarbotninn snarbrattur og ekkert sem brýtur kraftmiklar öldurnar, svo ólag getur skollið mun lengra upp í fjöruna en fólk á von á og komið þeim að óvörum sem standa á þurrum sandi.

    Má synda í sjónum við þessar strendur?

    Nei. Jafnvel í stilltu veðri er sjórinn yfirleitt kaldari en 10°C og straumarnir mjög sterkir. Njóttu strandanna úr öruggri fjarlægð.

    Hvað eru stóru steindrangarnir úti í sjónum?

    Þetta eru sjávardrangar, eins og Reynisdrangar við Vík. Jarðfræðilega eru þeir leifar af stærri klettum sem hafið hefur brotið niður, en samkvæmt þjóðsögunni eru þetta tröll sem urðu að steini þegar sólin náði þeim á leið með skip í land.

Skoða laus herbergi