Allar sögur · Blogg · 18. mars 2026
Af hverju suðurströndin er fullkomin fyrir dvöl við hafið

Flestir fara um suðurströndina á einum degi: lagt af stað snemma frá Reykjavík, stoppað við Seljalandsfoss, Skógafoss og Reynisfjöru og komið heim í myrkri. Það gengur, en það er mikill akstur fyrir fáeinar stundir á hverjum stað.
Ef þú gistir frekar á svæðinu verður ferðin allt önnur. Svartar strendur, fossar og sjávarþorp liggja svo þétt að þú getur skoðað einn eða tvo staði almennilega í stað þess að þjóta framhjá öllum. Hér förum við yfir hvernig dvöl við suðurströndina lítur út í raun, hvert er gott að fara utan fjölförnustu staðanna og hvernig þú velur bækistöð sem sparar þér akstur.
Af hverju er suðurströndin svona góður staður til að hvíla sig við hafið?
Suðurströndin fær þig til að hægja á þér án þess að þú takir eftir því. Svartar sandstrendur teygja sig meðfram Atlantshafinu, hraunbreiður liðast um landið og fjöllin gnæfa yfir rólegum vegum. Jafnvel aksturinn á milli staða er upplifun í sjálfu sér.
Þótt margar af þekktustu náttúruperlum landsins séu á svæðinu þarftu sjaldnast að fylgja fastri dagskrá. Útsýnisstaðir, faldar strendur og falleg þorp freista þín til að staldra aðeins lengur.
Það er líka auðvelt að skoða suðurströndina frá einum stað. Í stað þess að skipta um hótel á hverju kvöldi ferðu í styttri dagsferðir að fossum, jöklum og svörtum ströndum. Minni tími fer í að pakka og keyra, og dvölin verður bæði rólegri og eftirminnilegri.
Suðurströndin utan frægustu staðanna
Suðurströndin er þekkt fyrir staði eins og Seljalandsfoss, Skógafoss og Reynisfjöru. Þeir eru vel þess virði að heimsækja, en sum bestu augnablikin á svæðinu gerast fjarri fjölförnustu útsýnisstöðunum.
Hér eru nokkrar leiðir til að kynnast rólegri hlið strandarinnar.
1. Gakktu eftir kyrrlátum svörtum sandströndum
Svartar sandstrendur eru meðal þekktustu kennileita landsins, en það eru ekki allar strendur troðfullar. Utan frægustu staðanna finnurðu kyrrlátari kafla þar sem þú getur notið hafsins í friði.
Horfðu á sólsetrið við Óseyrartanga, leitaðu að skeljum í fjörunni við Stokkseyri eða farðu á hestbak í Víkurfjöru. Hlustaðu á öldurnar, fylgstu með sjófuglunum og taktu eftir því hvernig svarti sandurinn breytist með birtunni yfir daginn. Gefðu þér tíma á þessum fáförnu ströndum í stað þess að stoppa bara fyrir eina mynd.
2. Farðu fallega leið með ströndinni
Eitt það besta við suðurströndina er að leiðin sjálf er full af stöðum sem vert er að stoppa á. Á þjóðvegi 1 ekurðu framhjá útsýnisstöðum við hafið, hraunbreiðum, fossum og svörtum ströndum. Á leiðinni eru líka minna þekktir staðir, allt frá hinum sögufræga Rútshelli að Gígjagjá, sem sumir kalla Yoda Cave. Ekki skipuleggja hvert stopp fyrirfram, skildu eftir pláss fyrir nokkra óvænta útúrdúra.
3. Kynnstu sjávarþorpunum
Utan við frægustu náttúruperlurnar eru vinaleg sjávarþorp við suðurströndina þar sem lífið gengur hægar. Hvert þeirra hefur sinn karakter og sýnir aðra hlið á svæðinu.
Hér eru nokkur sjávarþorp sem vert er að setja inn í ferðaáætlunina um Suðurland:
Þorlákshöfn: Gakktu að Hafnarnesvita, skoðaðu hraunklettana við sjóinn eða fylgstu með heimafólki á brimbretti.
Eyrarbakki: Röltu á milli litríkra timburhúsa frá 19. öld, heimsæktu byggðasafnið í Húsinu og kíktu við í hinni sögufrægu Eyrarbakkakirkju
Stokkseyri: Fáðu þér ferskt sjávarfang, heimsæktu Knarrarósvita eða farðu í kajakferð um sjó eða síki
Vík: Heimsæktu Víkurkirkju uppi á hæðinni, sjáðu Lava Show eða gakktu upp að kirkjugarðinum og njóttu útsýnisins yfir þorpið og svörtu strendurnar.
Þorpin gefa ferðinni meiri fjölbreytni og veita innsýn í lífið við suðurströndina.
4. Fylgstu með ströndinni breytast yfir daginn
Þegar þú gistir við suðurströndina sérðu landslagið breytast eftir því sem líður á daginn. Morgunbirtan leggur mjúka liti yfir svörtu strendurnar og síðdegið færir síbreytilegan himin. Á sumrin geturðu notið strandarinnar langt fram á kvöld, og á veturna fylgja stuttum dögum dramatísk sólsetur og tækifæri til að sjá norðurljósin.
Ef þú kemur aftur á sama stað á öðrum tíma dags sérðu oft smáatriði sem fóru framhjá þér. Það er ein einfaldasta leiðin til að njóta strandarinnar.
Ævintýri og hvíld við suðurströndina
Rólegri taktur þýðir ekki að þú missir af ævintýrunum, þvert á móti verður hver upplifun oft betri. Verðu deginum í að ganga að fallegustu fossum Suðurlands, farðu í jöklagöngu eða á hestbak um sveitina. Komdu svo aftur á rólegan stað þar sem þú getur hvílt þig, borðað góðan mat og rifjað upp daginn.
Þetta jafnvægi milli ævintýra og hvíldar er það sem gerir dvöl við ströndina svo góða. Í stað þess að troða öllu inn í þétta dagskrá hefurðu tíma til að njóta hvers staðar.
Gistingin skiptir máli
Hvar þú gistir hefur mikil áhrif á hvernig þú upplifir suðurströndina. Góð staðsetning þýðir minni tíma undir stýri og meiri tíma úti í náttúrunni. Nokkrar nætur á sama stað gera dagskrána líka afslappaðri og gefa þér svigrúm til að fara aftur á uppáhaldsstaðina eða breyta plönum eftir veðri.
Ef þig langar að gista við sjóinn er Black Sand Hotel rólegur staður í Ölfusi. Hótelið stendur á milli Ölfusár og Atlantshafsins, stutt frá helstu perlum Suðurlands.
Á hótelinu bíður þín:
Nútímaleg herbergi og svítur í skandinavískum stíl
Vönduð DUX-rúm og rúmföt frá Quagliotti fyrir góðan nætursvefn
Kaffi og te frá L'OR á herberginu fyrir rólegar stundir kvölds og morgna
Heilsulind með gufubaði, eimbaði og heitum pottum, sem opnar undir lok árs 2026
Veitingastaðurinn ÓMUR á hótelinu, þar sem matseðillinn sækir innblástur í nærumhverfið
Kyrrlátt umhverfi og góð staðsetning gera Black Sand Hotel að góðri bækistöð fyrir dvöl við ströndina.
Góð ráð fyrir dvöl við suðurströndina
Besta dvölin sameinar góðan undirbúning og nægan sveigjanleika. Hafðu þetta í huga:
Klæddu þig í lögum, því veðrið getur breyst hratt við ströndina
Athugaðu færð og veðurspá áður en þú leggur af stað
Veldu eina bækistöð til að draga úr akstri
Farðu á vinsælustu staðina snemma eða seint til að njóta þeirra í meiri ró
Skildu eftir pláss í dagskránni fyrir fallega útúrdúra og óvæntar uppgötvanir
Taktu frá tíma til að njóta útsýnisins án þess að flýta þér á næsta stað
Veldu hótel við sjóinn, eins og Black Sand Hotel, stutt frá helstu perlum Suðurlands
Hægðu á þér við suðurströndina
Besta dvölin við ströndina skilur eftir pláss fyrir bæði ævintýri og kyrrð. Við suðurströndina hefurðu tíma til að finna falda staði, njóta útsýnisins og upplifa náttúruna í rólegheitum.
Gakktu eftir kyrrlátri svartri strönd, keyrðu fallega strandvegi eða verðu síðdeginu í sjávarþorpi. Það er auðvelt að sjá af hverju suðurströndin er svona gefandi.
Rétta bækistöðin getur skipt sköpum. Black Sand Hotel er rólegur staður til að slaka á, með margar af perlum suðurstrandarinnar í stuttri fjarlægð.
Ertu að skipuleggja ferð fyrir tvo? Lestu um rómantíska dvöl við ströndina á Suðurlandi.
Algengar spurningar
Hvar er best að gista við ströndina á Íslandi?
Black Sand Hotel er einn besti staðurinn. Kyrrlát staðsetning við hafið, skandinavísk hönnun og heilsulind skapa góðar aðstæður til að slaka á, og margar þekktustu náttúruperlur Suðurlands eru í stuttri fjarlægð.
Hentar suðurströndin vel í afslappað frí?
Já. Þar er gott jafnvægi milli útivistar og kyrrðar. Þú getur varið deginum úti í náttúrunni og komið svo aftur á þægilegan stað við ströndina.
Hvað ætti ég að vera marga daga við suðurströndina?
Gerðu ráð fyrir að minnsta kosti 2 til 4 dögum. Þá hefurðu tíma fyrir helstu staðina og líka fyrir fallegar ökuleiðir, strandgöngur og hvíld.
Hvað er hægt að gera í dvöl við ströndina?
Þú getur gengið eftir fáförnum svörtum ströndum, heimsótt fossa og skoðað sjávarþorp. Fallegar ökuleiðir, jöklagöngur og heit böð bjóða upp á enn fleiri möguleika, og þú hefur tíma til að hægja á þér og njóta náttúrunnar.
Hvenær er best að heimsækja suðurströndina?
Suðurströndin er falleg allt árið. Á sumrin eru bjartar nætur, lundar og greiðfærir vegir. Á veturna færðu snævi þakið landslag, íshella og tækifæri til að sjá norðurljósin.

