Allar sögur · Ferðaráð · 23. desember 2025
Hverju á að klæðast í norðurljósaferð

Strjálbýlið og lítil ljósmengun gera Ísland að kjörnum stað til að horfa á norðurljósin, og gisting á Black Sand Hotel er góður kostur í því tilliti. En hvar sem þú ert fer norðurljósatíminn oft saman við versta veðrið. Kuldi og vindur þurfa ekki að eyðileggja kvöldið ef þú undirbýrð þig vel. Hér förum við yfir það sem gott er að hafa í huga og hvernig best er að klæða sig fyrir norðurljósaferð.
Við hverju má búast
Norðurljósatímabilið nær yfirleitt frá síðari hluta ágúst fram í miðjan apríl. Því nær sem dregur miðjum vetri, því fyrr dimmir og því lengri er tíminn sem ljósin geta sést.
Oft þarf að bíða lengi eftir að ljósin láti sjá sig, stundum í nokkrar klukkustundir. Hitinn fer gjarnan niður fyrir frostmark og utan byggðar er skjól ekki alltaf nálægt.
Vindkælingin gerir það að verkum að kuldinn bítur meira en hitamælirinn segir til um. Gerðu líka ráð fyrir hálku, hugsaðu um hvort skórnir ráði við aðstæður og hvernig þú ætlar að bera myndavélabúnaðinn og komast í hann.
Hverju á að klæðast
Það mikilvægasta er að halda á sér hita en forðast að svitna, því svitinn kælir húðina. Það skiptir máli að klæða sig í lögum, og að lögin séu rétt valin.
Flestir eiga það sem þarf í skápnum, en ef eitthvað vantar fæst góður útivistarfatnaður í sérverslunum. Gott er að ganga frá því áður en lagt er af stað.
Fatnaðurinn sem þú þarft
Innstu lögin
Byrjaðu innst á hlýjum nærfötum. Flestir velja grunnlag úr merínóull eða gerviefnum sem einangra vel: síðar nærbuxur sem falla þétt að og langerma bol.
Bættu svo við millilagi sem heldur hitanum inni án þess að hefta hreyfingar. Flíspeysa er góður kostur, létt en hlý, og auðvitað má skipta henni út fyrir lopapeysu.
Ysta lagið
Ysta lagið þarf að vera bæði vindhelt og vatnshelt. Þótt spáin lofi heiðskíru er íslenska veðrið fljótt að skipta um skap, og ekki er hægt að útiloka skúr þegar líður á kvöldið.
Gakktu úr skugga um að ysta lagið standi undir nafni. Vatnsheldar buxur eru jafn mikilvægar og vatnsheld úlpa, og í roki gerir regnhlíf lítið gagn, svo veldu úlpu með hettu sem hægt er að herða að andlitinu.
Útlimir og andlit
Það er lykilatriði að verja andlit, hendur og fætur. Hafðu með þér húfu sem situr vel og trefil eða buff fyrir hálsinn.
Hanskarnir þurfa að halda höndunum heitum en vera um leið auðveldir að taka af, til dæmis þegar stilla þarf myndavélina. Þunnir hanskar innan undir hjálpa, eða hanskar með fingurgómum sem virka á snertiskjá.
Skóbúnaður
Fæturnir mega ekki gleymast. Ef þú stendur lengi á köldu undirlagi leitar kuldinn upp í gegnum sólana, svo veldu skó með þykkum og grófum sóla. Þykkir ullarsokkar eru ómissandi, en þeir mega ekki vera svo þröngir að þeir þrengi að.
Í hálku koma mannbroddar sér vel. Þeim er smeygt utan um skóna og þeir gefa gott grip. Einfaldir broddar fást víða yfir veturinn, meðal annars í matvöruverslunum.
Vasar og töskur
Hugsaðu líka um töskuna og vasana, sérstaklega ef þú ætlar að mynda norðurljósin, og hver vill það ekki? Hvernig kemurðu búnaðinum á staðinn og hvernig nærðu í hann yfir kvöldið?
Auka minniskort, rafhlöður, hleðslubankar og snúrur þurfa að vera aðgengileg en varin fyrir kuldanum. Lítið vasaljós kemur sér líka vel til að athuga stillingar á myndavélinni eða rata í myrkrinu.
Innri vasar halda hlutum heitum, en það má ekki vera of mikið mál að komast í þá gegnum ytri lögin. Of margar smellur og faldir rennilásar reyna á þolinmæðina. Þú getur líka notað einangrandi hulstur eða handhitapoka í ytri vösunum.
Svo er hægt að horfa á norðurljósin frá hótelinu sjálfu, eða rétt hjá því, og skjótast inn til að hlýja sér eða sækja það sem vantar. Á hóteli í sveit, eins og Black Sand Hotel, ertu á góðum stað til að njóta norðurljósanna án þess að fara langt.
Það þarf samt að klæða sig rétt, svo fylgdu þessum ráðum og þá verður norðurljósakvöldið eins notalegt og hugsast getur.

