Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Allar sögur · Ferðaráð · 23. október 2025

Að finna rétta brúðkaupsstaðinn á Íslandi

Að finna rétta brúðkaupsstaðinn á Íslandi

Brúðkaup fjarri heimahögum er draumkennd umgjörð um stóra daginn, og fáir staðir eru jafn stórbrotnir og Ísland. En í landi elds og ísa getur líka verið yfirþyrmandi að velja stað: hér er af nógu að taka, allt frá torfkirkjum til jökla og svartra stranda. Til að einfalda leitina höfum við tekið saman leiðarvísi um ólíka brúðkaupsstaði á Íslandi.

Skref 1: Mótið hugmyndina

Áður en þið farið að leita að besta brúðkaupsstaðnum á Íslandi þurfið þið að ákveða hvað þið viljið. Er draumurinn lítið og náið brúðkaup, eða stærri veisla sem kallar á meira rými? Skiptir snævi þakin umgjörð máli, eða er birta miðnætursólarinnar ómissandi?

Að velja stað í takt við stíl brúðkaupsins

Ein fyrsta ákvörðunin er stærð veislunnar. Brúðkaup fjarri heimahögum eru gjarnan minni en hefðbundnar veislur, en „lítið“ getur þýtt ýmislegt. Ræðið saman um hvar ykkar veisla lendir.

  • Lítið og náið brúðkaup: Þá fer athöfnin oftast fram utandyra: við rætur foss, í leyndu gljúfri eða á svartri strönd. Þessi stíll hentar pörum sem eru ein eða með allt að 10 gesti og gefur mestan sveigjanleika.

  • Litla veislan: Yfirleitt 10 til 40 gestir. Athöfnin getur áfram farið fram utandyra, en slíkar veislur kalla líka á þægilega bækistöð með gistingu og veitingum, oft á hóteli nálægt aðgengilegum náttúruperlum. Black Sand Hotel á Suðurlandi er til dæmis góð bækistöð fyrir ferðir um Gullna hringinn.

  • Stóra veislan: Fyrir 50 gesti eða fleiri þrengist valið niður í stærri hótel, veislusali eða ráðstefnurými, aðallega í Reykjavík eða stærri bæjum. Íslenska landslagið getur samt verið hluti af myndunum.

Brúðhjón leiðast fyrir ofan steinboga á Íslandi.

Að velja stað eftir árstíð og veðri

Næsta stóra ákvörðun: hvenær á að gifta sig á Íslandi. Árstíðirnar eru gjörólíkar og breyta aðgengi, verðlagi og andrúmslofti brúðkaupsstaðanna.

  • Sumar (júní til ágúst): Háannatími, miðnætursól og besta aðgengið. Vegir að afskekktustu stöðunum, eins og hálendinu, eru yfirleitt opnir og bjart er nánast allan sólarhringinn, sem gefur mikinn sveigjanleika. Þetta er hins vegar líka annasamasti og dýrasti tíminn, vinsælir staðir eru fjölsóttir og erfiðara að fá næði.

  • Vor og haust (apríl til maí og september til október): Millimánuðirnir hafa marga kosti með færri málamiðlunum. Á vorin opnast vegir, veðrið mildast og eftirspurnin er minni. Í september eru haustlitir, færri ferðamenn og myrkrið snýr aftur, svo norðurljósin geta sést. Aðgengi er víðast gott og verð hóflegra en á hásumri.

  • Vetur (nóvember til mars): Á veturna breytist landið í heim snjós, íss og langra nátta, og þá eru bestu skilyrðin fyrir norðurljós. Landslagið er dramatískt, en frost, óveður og stuttir dagar flækja skipulagið og athafnir utandyra þurfa að vera stuttar. Sumar náttúruperlur, eins og íshellar, eru aðeins aðgengilegar í jeppaferðum með leiðsögn.

    Sama hver árstíðin er gildir ein regla: hafið alltaf varaáætlun. Veðrið á Suðurlandi er alræmt fyrir að vera óútreiknanlegt, og sveigjanleiki er besta vörnin gegn vonbrigðum.

    Skref 2: Kynnið ykkur ólíkar gerðir brúðkaupsstaða

    Þegar hugmyndin er komin á hreint er tímabært að skoða kostina. Þeir skiptast í tvo flokka: athafnastaði undir berum himni og staði innandyra með allri þjónustu.

    Þið þurfið ekki að velja annaðhvort. Mörg pör halda athöfnina úti í náttúrunni og veisluna og gistinguna á þægilegu hóteli. Lykillinn er að finna samsetninguna sem hentar ykkur.

    Bestu náttúrustaðirnir fyrir athöfnina

    Það er engin furða að fólk dreymi um að gifta sig á Íslandi. Hrá og stórbrotin náttúran er veislusalurinn hér. Munið þó að margir vinsælir staðir krefjast leyfa og að aðgengið ræður því hvað er raunhæft, sérstaklega á veturna.

    • Skógafoss: Tilkomumikill foss rétt við hringveginn þar sem auðvelt er að komast alveg að fossinum. Vinsæll fyrir athafnir, og stærðin ein tryggir dramatískar brúðkaupsmyndir á Íslandi.

    • Seljalandsfoss: Frægur fyrir stíginn á bak við fossinn, sem gefur sjaldgæf og persónuleg sjónarhorn í myndatöku. Á sumrin gefur miðnætursólin fallega baklýsingu.

    • Reynisfjara: Þekkt fyrir svartan sandinn, stuðlabergið og Reynisdranga, og frægust af mörgum glæsilegum svörtum ströndum landsins.

    • Dyrhólaey: Dramatískur höfði með víðu útsýni yfir suðurströndina, svartar strendur og steinbogann fræga. Á sumrin má oft sjá lunda.

    • Jökulsárlón: Fljótandi ísjakar í bakgrunni, eins og úr öðrum heimi. Fer vel með myndatöku á Demantsströndinni, þar sem ísbrot skolast upp á svartan sandinn.

    • Íshellir í Kötlujökli: Við Mýrdalsjökul, ógleymanlegur kostur fyrir ævintýragjörn pör. Athafnir þar eru aðeins mögulegar í jeppaferð með leiðsögn og aðgengi fer eftir árstíð og öryggisaðstæðum.

      Brúðhjón stilla sér upp á svartri sandströnd á Íslandi.

      Staðir innandyra og hótel um allt land

      Staðir innandyra eru nauðsynlegir fyrir veislur og gistingu, og góð varaáætlun gegn íslensku veðri.

      • Black Sand Hotel (Ölfus): Nútímalegt hótel með víðu útsýni yfir svarta strönd. Notaleg bækistöð til að skoða perlur suðurstrandarinnar, sem hentar vel fyrir veislur og gistingu brúðkaupsgesta.

      • Búðakirkja á Snæfellsnesi: Einstök svört timburkirkja á Búðum, tilvalin fyrir litlar athafnir (allt að 40 gestir) og fræg fyrir dökka útlínuna á móti hrauni og snævi þöktum fjöllum.

      • Árbæjarsafn (Reykjavík): Þar stendur lítil torfkirkja sem hentar fyrir minni brúðkaup (um 20 gestir). Gamla þorpið skapar hefðbundna íslenska umgjörð steinsnar frá miðborginni.

      • Dómkirkjan í Reykjavík: Ein elsta og merkasta kirkja borgarinnar, við Austurvöll. Sígildur og glæsilegur kostur fyrir pör sem vilja hefðbundna kirkjulega athöfn í höfuðborginni.

      • Iðnó (Reykjavík): Sögufrægt hús við Tjörnina með sölum sem henta stærri veislum (allt að um 110 gestir í sæti), þar sem gamall sjarmi mætir nútímaaðstöðu.

      • Hofskirkja (Öræfum): Ein af síðustu torfkirkjum landsins, fullkomin fyrir mjög litlar athafnir og pör sem skipuleggja myndatöku við Jökulsárlón.

        Brúðhjón ganga í átt að Búðakirkju á Íslandi.

        Skref 3: Hagnýtu atriðin

        Þegar hugmyndin er mótuð og þið hafið kynnt ykkur staðina er komið að hagnýtu atriðunum, sem ráða því hvort óskastaðurinn gengur upp.

        Aðgengi, leyfi og kostnaður

        Ekki vanmeta ferðaskipulagið. Afskekktir staðir kalla oft á sérhæfð farartæki, eins og breytta jeppa eða fjórhjóladrifnar smárútur, og gestir þurfa að treysta sér í mögulega krefjandi aðstæður. Ef þægindi og gott aðgengi eru í forgangi er gott að velja bækistöð eins og Black Sand Hotel.

        Fyrir veislur á afskekktum stöðum þarf að muna eftir ferðakostnaði þjónustuaðila, þar á meðal gistingu, akstri og dagpeningum. Hann safnast fljótt upp þegar staðurinn er langt frá bæjum, svo ef kostnaðurinn skiptir máli er gott að velja stað með allri þjónustu nálægt Reykjavík eða við hringveginn.

        Leyfi og samþykki landeigenda eru stór hluti af brúðkaupi úti í náttúrunni. Hafið alltaf samband við landeiganda, sveitarfélag eða umsjónaraðila (til dæmis Umhverfisstofnun þegar um þjóðgarða er að ræða) með margra mánaða fyrirvara. Leyfisgjöld fara eftir stærð hópsins, staðsetningu og árstíma.

        Brúðhjón stilla sér upp á fjallstindi á Íslandi.

        Ljósmyndun og birtuskilyrði á Íslandi

        Ljósmyndari sem þekkir svæðið getur hjálpað ykkur að skipuleggja daginn eftir veðri, birtu og mannfjölda. Birtan mótar tímalínuna og ræður miklu um hvaða staðir henta. Veljið stað sem nýtir birtu árstíðarinnar:

        • Dimmur himinn (vetur): Ef það er ómissandi að ljósmynda norðurljósin skuluð þið velja stað fjarri ljósmengun. Sveitahótel við suðurströndina, eins og Black Sand Hotel, eru nálægt dimmum svæðum við svartar strendur. Í þéttbýli, sérstaklega í Reykjavík, eru minni líkur á að sjá norðurljósin.

        • Dagsbirta og gullna stundin (sumar): Undir miðnætursólinni er mýksta birtan mjög seint á ferðinni, oft um miðnætti eða síðar. Veljið athafnastað sem er auðvelt og öruggt að komast að seint á kvöldin. Innandyra skipta stórir gluggar og opið útsýni máli, svo þið njótið björtu sumarkvöldanna.

        • Lýsing innandyra: Gamlar kirkjur og söguleg hús geta verið stemningsrík en lýsingin dauf eða ójöfn. Spyrjið út í lýsinguna fyrirfram, því stundum þarf aukalýsingu til að ná góðum myndum innandyra.

          Brúðhjón ganga eftir svartri sandströnd á Íslandi.

          Að velja þjónustuaðila

          Í landi óútreiknanlegs veðurs og afskekktra staða skiptir staðarþekking öllu.

          • Ráðið skipuleggjanda á staðnum fyrst: Það er mikilvægasta ákvörðunin. Íslenskir brúðkaupsskipuleggjendur kunna að útvega leyfi, þekkja staðina vel og sjá til þess að öll gögn skili sér rétt.

          • Veljið fólk sem þekkir landið: Fyrir hár, förðun og umfram allt ljósmyndun er best að velja fagfólk sem býr og starfar á Íslandi og þekkir aðstæður.

          • Aksturinn: Tryggið ykkur hópferðafyrirtæki eða jeppabílstjóra, jafnvel fyrir minni veislur. Það er lykillinn að því að koma ykkur, gestunum og búnaðinum örugglega á milli staða.

            Lokaákvörðunin

            Það krefst þolinmæði að finna rétta staðinn og forgangsraða eftir eigin hugmynd. Besti staðurinn býður bæði upp á athöfnina úti í náttúrunni sem ykkur dreymir um og hlýja, trausta aðstöðu. Með þessum skrefum getið þið þrengt valið niður í staðinn sem hentar ykkar sögu, og bækistöð eins og Black Sand Hotel gefur ykkur bæði þægindi og stutt í tilkomumestu staði suðurstrandarinnar.

            Algengar spurningar um leit að brúðkaupsstað á Íslandi

            Duga 5.000 dollarar fyrir brúðkaup?

            Já, 5.000 dollarar duga fyrir lítið brúðkaup og dekka grunnatriði eins og ljósmyndara og gistingu í nokkra daga, en það er knappt á íslenskan mælikvarða. Flestir brúðkaupspakkar og veislur enda nær 6.000 eða 12.000 dollurum eða meira.

            Hvað er raunhæft að áætla fyrir 100 manna brúðkaup?

            Verð er breytilegt, en raunhæf áætlun fyrir 100 manna brúðkaup á Íslandi byrjar yfirleitt í kringum 30.000 til 50.000 dollara.

            Hvar er hægt að gifta sig á Íslandi?

            Táknræn athöfn getur farið fram nánast hvar sem er, frá fossi í þjóðgarði til svartrar strandar. Lögleg hjónavígsla er hins vegar framkvæmd af sýslumönnum eða vígslumönnum trú- og lífsskoðunarfélaga.

            Geta erlendir ríkisborgarar gift sig á Íslandi?

            Já, Ísland tekur vel á móti erlendum ríkisborgurum sem vilja gifta sig hér og regluverkið er framsækið. Skila þarf tilteknum gögnum, eins og hjúskaparstöðuvottorði, fyrirfram.

            Er auðvelt að gifta sig á Íslandi?

            Skila þarf gögnum innan réttra tímamarka, en athöfnin sjálf er oft einföld og falleg, sérstaklega þegar skipuleggjandi sér um lagalegu hliðina.

Fleiri sögur

Skoða laus herbergi