Athugið að vegna tafa standa enn yfir framkvæmdir við hótelið og heilsulindina. Heilsulindin opnar undir lok árs 2026.

Black Sand Hotel

Allar sögur · Blogg · 3. febrúar 2026

Hraunbreiður og jarðhiti á Íslandi

Hraunbreiður og jarðhiti á Íslandi

Hraunbreiður og jarðhiti eru meðal þess sem einkennir Ísland. Storknuð hraun teygja sig kílómetrum saman og gufa stígur upp úr jörðinni, til marks um að landið er enn í mótun. Þetta er ekki bara að finna á afskekktum stöðum, heldur nærri vegum, bæjum og fjölförnum leiðum, svo það verður eðlilegur hluti af hverju ferðalagi.

Hér fjöllum við um hraunin og jarðhitasvæðin, og gefum hagnýt ráð um hvar gott er að gista og hvernig má skoða svæðin á öruggan hátt.

Af hverju eru hraun og jarðhitasvæði svona algeng á Íslandi?

Ísland liggur á Mið-Atlantshafshryggnum, þar sem Norður-Ameríkuflekinn og Evrasíuflekinn færast hægt í sundur. Kvika stígur upp um sprunguna og veldur tíðum eldgosum, sem á þúsundum ára hafa myndað víðáttumiklar hraunbreiður um allt land.

Jarðskorpan undir landinu er líka þunn og hleypir hita neðan úr jörðinni upp á yfirborðið. Úr verða jarðhitasvæði full af hverum, gufuaugum og leirhverum. Mörg aðgengilegustu hraunin og jarðhitasvæðin eru á Suðurlandi og Reykjanesi, svo auðvelt er að skoða þau allt árið.

Mosi og líf í hraunum

Hraun myndast þegar bráðin kvika rennur yfir landið og storknar. Tvær megingerðir hrauna finnast víða um land:

  • Helluhraun (pāhoehoe): sléttara og oft með reipisáferð, myndast við hægt hraunrennsli

  • Apalhraun (ʻaʻā): gróft og úfið, myndast við hraðara og óreglulegra rennsli

Með tímanum leggst mosi yfir mörg hraun, og hann er eitt helsta einkenni þeirra. Á Íslandi vaxa yfir 600 tegundir mosa og margar þola bæði hvassviðri og frost. Mosinn vex hægt og ef hann skemmist getur tekið áratugi fyrir hann að jafna sig, svo það skiptir miklu að halda sig á merktum stígum.

Hraunbreiða þakin grænum mosa.

Í hraununum er líka annar gróður og dýralíf, einkum í eldri hraunum þar sem þunnur jarðvegur hefur myndast. Þar gætirðu séð:

  • Villiblóm í skjólsælum lautum á sumrin

  • Harðgerðan gróður á borð við birkikjarr

  • Fugla sem verpa á milli hraunkletta

  • Kindur á beit í hrauninu

    Allt sýnir þetta að hraunin eru lifandi vistkerfi sem halda áfram að breytast.

    Helstu hraunbreiður landsins

    Hraunin eru afar ólík að aldri, útliti og aðgengi. Frá sléttum, mosavöxnum breiðum yfir í úfið og bert grjót sýna þau ólík stig eldvirkninnar. Hér eru nokkur merkilegustu hraunin sem hægt er að skoða.

    1. Eldhraun: stærsta hraunbreiða Íslands

    Eldhraun er ein stærsta hraunbreiða í heimi og þekur um 565 ferkílómetra. Það rann í Skaftáreldum árið 1783, einu mesta eldgosi sögunnar, sem hafði skelfilegar afleiðingar fyrir fólk og búfé og átti þátt í Móðuharðindunum. Í dag er hraunið þakið þykkum, grænum mosa sem gefur landslaginu mjúkt og annarsheimslegt yfirbragð.

    Eldhraun liggur nærri suðurströndinni og margir keyra í gegnum það á leið á milli staða. Hlutar af eldbrunnu landslagi landsins voru líka notaðir á sjöunda áratugnum til að þjálfa geimfara Apollo 11, meðal annars í Öskju, því landslagið þótti líkjast yfirborði tunglsins.

    Mosavaxið Eldhraun.

    2. Berserkjahraun: ævafornt hraun

    Berserkjahraun á Snæfellsnesi er meira en 4.000 ára gamalt. Hraunið er úfið og ójafnt og mjóir stígar liggja um það þvert og endilangt. Víða er það þakið mjúkum mosa sem myndar fallega andstæðu við hrjúft bergið.

    Berserkjahraun kemur fyrir í Eyrbyggja sögu, og sú tenging við fornsögurnar gefur svæðinu aukna dýpt.

    3. Hraunið við Fagradalsfjall: nýtt land

    Eldgosin við Fagradalsfjall, sem hófust árið 2021, mynduðu eitt yngsta aðgengilega hraun landsins. Stór svæði af kólnuðu hrauni eru opin gestum, svo hægt er að skoða nýtt land í návígi.

    Stutt er í hraunið frá Grindavík, Keflavíkurflugvelli og Reykjavík, og svæðið er vinsæll áfangastaður. Merktar gönguleiðir liggja um það og sú lengsta er um 12 km. Hægt er að fara á eigin vegum með varúð eða með leiðsögumanni. Aðstæður geta breyst hratt, svo kynntu þér nýjustu öryggisupplýsingar áður en þú ferð.

    Kólnað hraun við Fagradalsfjall.

    4. Sundhnúkagígar: glænýtt hraun

    Sundhnúkagígar á Reykjanesi eru meðal yngstu hraunmyndana landsins. Svæðið hefur mótast í röð eldgosa á árunum 2023 til 2025 og er því afar áhugavert fyrir þá sem vilja sjá eldvirkni samtímans.

    Sum gosanna höfðu áhrif á Grindavík og hraun rann að svæðum við Bláa lónið, meðal annars bílastæðinu. Aðgengi að hrauninu hefur verið stýrt af varfærni. Það er yfirleitt greitt en takmarkanir geta breyst eftir virkni, rétt eins og annars staðar.

    5. Dimmuborgir: heimkynni jólasveinanna

    Dimmuborgir, skammt frá Mývatni, eru þekktar fyrir stórbrotnar hraunmyndanir, háa dranga, hella og steinboga. Hraunið myndaðist í eldgosi fyrir um 2.300 árum.

    Samkvæmt þjóðtrúnni eiga jólasveinarnir heima í Dimmuborgum. Góðir göngustígar gera svæðið aðgengilegt fyrir fólk á öllum aldri.

    Hraunmyndanir í Dimmuborgum.

    6. Holuhraun: afskekkt og bara fært á sumrin

    Holuhraun er líka eitt af yngri hraunum landsins, myndað í stóru eldgosi á árunum 2014 til 2015. Gosið hófst á um 7 km langri sprungu í eldstöðvakerfi Bárðarbungu og þeytti upp miklum hraunstrókum.

    Hraunið þekur um 85 ferkílómetra og yfirborðið er gróft og bert, allt frá smágrjóti upp í stórar hraunblokkir. Aðeins er fært þangað á sumrin, þegar F905 og F910 eru opnir. Til þess þarf fjórhjóladrifinn bíl, gott veður og góðan undirbúning.

    Jarðhitinn

    Jarðhitasvæði verða til þar sem hiti stígur upp undir yfirborðinu. Hann brýst upp um sprungur og myndar hveri, gufuaugu, goshveri og leirhveri. Þessi fyrirbæri finnast um allt land og eru misstór og misöflug eftir aðstæðum á hverjum stað.

    Það er hægt að upplifa jarðhitann á ýmsa vegu. Eftir því hvert þú ferð geturðu:

    • Gengið eftir göngupöllum um virk gufusvæði

    • Horft á goshveri gjósa frá merktum útsýnisstöðum

    • Baðað þig í náttúrulaugum eða heitum laugum þar sem það er leyft

      Litríkt hverasvæði við Hveri.

      Víða sést jarðhitinn allt árið og gufan stígur upp jafnvel í mestu kuldunum. Upplifunin nær til allra skilningarvita: brennisteinslyktin liggur í loftinu og hljóðið í sjóðandi vatninu fylgir þér um svæðið. Skýrar merkingar og göngupallar hjálpa fólki að fara um á öruggan hátt og hlífa viðkvæmu landinu.

      Helstu jarðhitasvæðin

      Það er auðvelt að rekast á jarðhitasvæði á ferð um landið. Mörg eru nálægt helstu leiðum, með merktum stígum þar sem hægt er að fylgjast með á öruggan hátt. Hér eru nokkur þau merkilegustu.

      1. Geysir og Strokkur: einn af hápunktum Gullna hringsins

      Geysir hefur gefið goshverum um allan heim nafn sitt. Hann gýs aðeins endrum og eins, en Strokkur rétt hjá gýs á nokkurra mínútna fresti og þeytir heitu vatni hátt í loft upp. Göngupallar og útsýnissvæði gera fólki kleift að fylgjast með á öruggan hátt. Svæðið er eitt fjölsóttasta jarðhitasvæði landsins en vel við haldið og auðvelt yfirferðar.

      Strokkur gýs á hverasvæðinu við Geysi.

      2. Hverir: hverasvæðið fyrir norðan

      Hverir, skammt frá Mývatni, eru þekktir fyrir kröftugan jarðhita. Sjóðandi leirhverir, rjúkandi gufuaugu og skærlitur jarðvegur setja svip á landslagið. Jörðin er óstöðug og brennisteinslyktin sterk, svo haltu þig alltaf á merktum stígum.

      3. Seltún: litríkt hverasvæði

      Seltún á Reykjanesi er þekkt fyrir skæra liti og virkan jarðhita. Gufa stígur upp úr jörðinni og hverir liggja þétt við göngustígana. Trépallar leiða þig um svæðið, og þar sem Seltún er við veginn er það þægilegt og fljótlegt stopp.

      Gufa stígur upp af litríkum hverum í Seltúni.

      4. Gunnuhver: drynjandi hverir

      Gunnuhver er eitt öflugasta jarðhitasvæði landsins. Stór gufuaugu blása út gufu í sífellu með miklum hávaða. Girðingar umlykja svæðið vegna mikils hita í jörðinni og þær ber alltaf að virða.

      5. Hveragerði: hverabærinn

      Hveragerði er byggt á virku jarðhitasvæði og hitinn sést í hlíðunum ofan við bæinn og allt um kring. Á göngu um bæinn má sjá hveri og leirholur, og gönguleiðir í nágrenninu liggja um jarðhitasvæði, meðal annars upp í Reykjadal að heitu ánni. Í bænum er öll þjónusta, kaffihús og göngustígar, svo hann er gott stopp á leiðinni.

      Gufa stígur upp af heitu ánni í Reykjadal.

      6. Hveravellir: jarðhitavin á hálendinu

      Hveravellir eru á milli Langjökuls og Hofsjökuls á hálendinu. Þar eru rjúkandi gufuaugu og heitar náttúrulaugar í opnu og afskekktu landslagi. Aðeins er fært þangað á sumrin og aðgengi fer eftir færð og veðri, svo undirbúðu ferðina vel.

      7. Leirhnjúkur: heitar laugar og rjúkandi gufuaugu

      Leirhnjúkur, nærri Kröflu, er eitt virkasta jarðhitasvæði landsins. Göngupallar liggja um svæðið og gera fólki kleift að komast nálægt gufuaugum og heitri jörð. Landslagið breytist stöðugt vegna jarðhitans og stígum og útsýnisstöðum getur verið hnikað til eftir aðstæðum.

      Heitar laugar og böð

      Jarðhitinn er ekki bara sjónarspil, hann býður þér líka að hægja á og leggjast í heitt vatn. Ef þig langar í heitt bað á milli staða eru þessir staðir vel þess virði:

      • Bláa lónið: Heimsþekkt, mjólkurblátt lón í hrauninu skammt frá Reykjavík.

      • Sky Lagoon: Persónulegri upplifun innblásin af íslenskri baðmenningu.

      • Gamla laugin (Secret Lagoon): Ein elsta náttúrulega sundlaug landsins og leynistaður á Gullna hringnum.

      • Jarðböðin við Mývatn: Rólegri baðstaður við Mývatn.

      • Vök Baths: Fljótandi laugar á Austurlandi með opnu útsýni yfir Urriðavatn.

      • Heita áin í Reykjadal: Heit á sem gengið er að, fyrir þá sem vilja vera nær náttúrunni.

        Þessir staðir sameina þægindi og landslag og bjóða upp á hlýju og ró í miðri náttúrunni.

        Mjólkurblátt vatnið í Bláa lóninu.

        Öryggi í hraunum og á jarðhitasvæðum

        Landslagið er stórfenglegt en krefst aðgátar. Jörðin getur verið óstöðug og aðstæður breyst hratt.

        Hafðu þetta í huga:

        • Haltu þig á merktum stígum: Ómerkt hraun og mosavaxin svæði geta verið óstöðug og viðkvæmur mosi getur verið áratugi að jafna sig eftir skemmdir.

        • Notaðu göngupallana á jarðhitasvæðum: Þeir eru til að halda fólki frá hættulega heitri jörð og gufuaugum.

        • Snertu ekki hverina: Heit jörð, leir og vatn geta valdið alvarlegum brunasárum, jafnvel þótt allt virðist rólegt.

        • Kannaðu aðstæður áður en þú ferð: Veður og eldvirkni geta haft áhrif á aðgengi og öryggi, sérstaklega á virkum eða afskekktum svæðum. Nýjustu upplýsingar eru á SafeTravel.is.

        • Vertu í góðum skóm: Traustir skór með góðu gripi draga úr hættu á að renna á ójöfnu hrauni og blautu undirlagi.

          Með þessu verndarðu bæði sjálfa þig eða sjálfan þig og viðkvæma náttúruna.

          Hvar er gott að gista nálægt hraunum og jarðhita?

          Reykjanesskaginn er eitt eldvirkasta svæði landsins, svo það liggur beint við að gista í grenndinni ef þú vilt upplifa hraun og jarðhita í návígi. Suðurströndin skammt frá er líka stutt frá jarðhitasvæðum, svörtum ströndum og helstu leiðum.

          Ef þú gistir á Suðurlandi geturðu skoðað Reykjanes, Suðurland og jafnvel Gullna hringinn yfir daginn. Black Sand Hotel, við ströndina í Ölfusi, er góð bækistöð fyrir slíkar ferðir. Þar ertu í nánu sambandi við náttúruna en samt stutt frá öllum helstu svæðunum.

          Á hótelinu bíður þín:

          • Þægileg herbergi og svítur í skandinavískum stíl

          • Herbergi með útsýni yfir hafið og himininn

          • Veitingastaðurinn og barinn ÓMUR fyrir afslöppuð kvöld

          • Heilsulind sem opnar undir lok árs 2026

            Hvort sem leiðin liggur vestur, norður eða austur er Black Sand Hotel góð bækistöð til að kanna fjölbreytt landslag Íslands.

            Annarsheimslegt landslag

            Gufa stígur upp af leirhverum við Gunnuhver.

            Hraunin og jarðhitasvæðin sýna náttúruöflin sem enn móta landið. Ævaforn, mosavaxin hraun standa við hlið nýs lands og virkra hverasvæða og minna á að Ísland er í stöðugri mótun.

            Þegar þú ferð um þessi svæði af virðingu og gefur þér tíma færðu dýpri skilning á náttúrunni. Rólegri heimsókn er bæði öruggari og innihaldsríkari.

            Algengar spurningar um hraun og jarðhita

            Eru hraunbreiður á Íslandi?

            Já, á Íslandi eru óteljandi hraun sem hafa myndast í endurteknum eldgosum á þúsundum ára. Þau eru víða um land og meðal sérstæðasta landslagsins.

            Hvar get ég séð rennandi hraun?

            Stundum má sjá rennandi hraun í eldgosum á Reykjanesskaga, meðal annars við Sundhnúkagíga og Fagradalsfjall. Aðgengi fer eftir aðstæðum hverju sinni og getur verið takmarkað. Fylgdu alltaf opinberum leiðbeiningum.

            Hver er stærsta hraunbreiða landsins?

            Eldhraun er stærsta hraunbreiða landsins. Það rann í Skaftáreldum undir lok 18. aldar og þekur víðáttumikið svæði á Suðurlandi.

            Af hverju má ekki taka hraungrýti?

            Að fjarlægja grjót skemmir verndað landslag. Mörg hraun eru friðlýst og þar er óheimilt að taka grjót.

            Má ganga um hraun?

            Já, þar sem stígar eru skýrt merktir. Að ganga á mosavöxnu hrauni utan stíga veldur langvarandi skemmdum.

            Er brennisteinslykt af jarðhitasvæðum?

            Já. Lyktin stafar af brennisteinsvetni sem losnar við virkan jarðhita, og sumir lýsa henni sem „eggjalykt“.

            Er öruggt að heimsækja jarðhitasvæði að vetri til?

            Já, ef þú ferð að öllu með gát, sérstaklega í hálku, og heldur þig á merktum stígum.

Fleiri sögur

Skoða laus herbergi