Allar sögur · Blogg · 31. júlí 2026
Fimm kyrrlátir staðir nálægt Reykjavík

Reykjavík hefur margt að bjóða, en um leið og haldið er út fyrir borgina opnast allt önnur hlið á landinu. Í um klukkustundar fjarlægð taka kyrrlátir dalir, firðir, strendur og hraun við af götunum, landslag sem fær þig til að hægja á þér og njóta þess að vera úti.
Hvort sem þú átt lausan eftirmiðdag eða heila helgi eru þessir staðir vel þess virði.
Fimm kyrrlátir staðir nálægt Reykjavík
Langar þig út úr bænum? Þessir friðsælu staðir bjóða fallegt landslag, færra fólk og hægari takt.
1. Mosfellsdalur: kyrrlát sveit í seilingarfjarlægð
Rétt norðaustan við Reykjavík er Mosfellsdalur, sem virðist órafjarri borginni þótt aksturinn sé stuttur. Dalurinn er þekktur fyrir græn tún, hesta, fjallasýn og rólega sveitavegi.
Gefðu þér tíma til að ganga um dalinn, kíkja á kaffihús eða fara í reiðtúr. Þú getur líka gengið að Helgufossi eða heimsótt Gljúfrastein, heimili Halldórs Laxness. Haltu svo áfram í Mosfellsbæ, skoðaðu fossinn við Álafoss og slakaðu á í Lágafellslaug.
Mosfellsdalur er sérstaklega fallegur á sumrin þegar villt blóm þekja túnin, og á haustin loga hlíðarnar í litum. Ef þú vilt einfalda náttúruupplifun nálægt borginni er dalurinn frábær byrjun.
2. Hvalfjörður: fallegur fjörður fyrir hægari takt
Hvalfjörður var eitt sinn aðalleiðin milli Reykjavíkur og Vesturlands en varð rólegur eftir að göngin opnuðu. Í dag er vegur 47 fyrir fjörðinn ein friðsælasta og fallegasta ökuleið svæðisins, með kyrrlátri strönd og tignarlegum fjöllum.
Fylgdu ströndinni, þar sem ný sýn yfir fjörðinn opnast við hverja beygju. Gakktu að Glym, einum hæsta fossi landsins, eða slakaðu á í heitu laugunum í Hvammsvík. Ef sagan heillar er Hernámssetrið að Hlöðum gott stopp, og á leiðinni sérðu minjar um gamla verslunarstaði og seinni heimsstyrjöldina.
Hvort sem þú gengur að útsýnisstöðum eða ekur rólega meðfram ströndinni launar fjörðurinn hægari takt.
3. Bjarnagjá: falinn köfunarstaður með sokknum báti
Bjarnagjá, nálægt Grindavík á Reykjanesi, er 18 metra djúp hraungjá og ein af minna þekktum náttúruperlum landsins. Gjáin er aðeins nokkur hundruð metra frá sjónum og í henni er að mestu ferskt grunnvatn með örlitlu sjávarívafi.
Kafarar með réttindi geta kafað niður í gjána, þar sem brattir hraunveggir umlykja lítinn bát á botninum. Jafnvel ofan vatnsborðs gera kyrrðin og hrjúft hraunið Bjarnagjá að góðu stoppi. Ólíkt Silfru og Mývatni koma fáir hingað, svo hér kynnist þú rólegri hlið Reykjaness.
4. Ölfus: friðsælt svæði með hraunbreiðum og hverum
Sunnan við Reykjavík er Ölfus, svæði sem geymir margt af því sem gerir Ísland einstakt. Eldvirkni hefur mótað svæðið í þúsundir ára og skapað hraun, jarðhitasvæði, hrjóstrugar hæðir og opnar sveitir, fjarri fjölförnustu ferðamannaleiðunum.
Hér er margt að uppgötva. Skoðaðu Arnarker, hraunhelli þar sem ísmyndanir birtast á veturna, farðu á hestbak um hraunbreiður Íslands eða á brimbretti við Þorlákshöfn. Fyrir rólegri jarðhitaupplifun er hverasvæðið í Hverahlíð tilvalið, með rjúkandi gufuaugum og bullandi hverum.
Ábending: Á heiðskírum vetrarkvöldum er gott að skjótast að útsýnisstaðnum við Ölfusá til að horfa á norðurljósin fjarri borgarljósunum.
5. Óseyrartangi: afskekkt svört sandströnd nálægt Reykjavík
Ef þú vilt finna eina af földu svörtu ströndunum á Suðurlandi er Óseyrartangi vel þess virði. Strandlengjan er nánast ósnortin af mannvirkjum og landslagið fær að halda sér villt.
Í stað mannfjölda tekur á móti þér opin svört fjara, brim Atlantshafsins og óslitið útsýni eftir ströndinni. Friðsæll staður fyrir ljósmyndun, fuglaskoðun eða rólega göngu. Á veturna berast stundum litlir ísjakar á land og gera landslagið enn fallegra.
Hér er auðvelt að hægja á sér og njóta umhverfisins. Óseyrartangi er staður sem oft gleymist en gefur mikið.
Gistu á Black Sand Hotel og njóttu kyrrðarinnar við suðurströndina
Ef þig langar að lengja ferðina er Black Sand Hotel góð bækistöð til að skoða rólegri hliðar landsins, skammt frá svörtum sandströndum, hrauni og fleiri náttúruperlum.
Á meðan á dvölinni stendur getur þú notið:
Þægilegra herbergja í skandinavískum anda sem styðja við hvíldarfrí á Íslandi
Útsýnis yfir Ölfusá og Atlantshafið, sitt hvorum megin við hótelið
Veitingastaðarins ÓMS og barsins fyrir morgunverð, kvöldverð eða drykk að kvöldi
Kyrrlátrar og afslappandi heilsulindar til að hlaða batteríin eftir daginn
Greiðrar leiðar að helstu perlum Suðurlands og fallegum ökuleiðum
Friðsællar umgjarðar fjarri mannfjöldanum, aðeins 40 mínútur frá Reykjavík
Hvort sem þú ætlar að skoða meira af suðurströndinni eða einfaldlega slaka á er Black Sand Hotel kjörin bækistöð.
Hægðu á þér og upplifðu rólegri hlið Íslands
Eftirminnilegustu stundirnar finnast ekki alltaf á þéttskipaðri dagskrá heldur á kyrrlátu stöðunum þar á milli. Ganga eftir svartri strönd eða fallegur akstur um fjörð getur verið jafn gefandi.
Þessir staðir eru einföld leið til að kynnast rólegri hlið landsins. Ef tíminn leyfir getur þú lengt ferðina með dvöl á Black Sand Hotel og notið enn meira af friðsælu landslagi Suðurlands.
Algengar spurningar
Hvert er hægt að skreppa frá Reykjavík yfir helgi?
Mosfellsdalur, Hvalfjörður og Ölfus eru frábærir kostir. Allir bjóða fallegt landslag, hægari takt og tækifæri til að slaka á án þess að fara langt frá borginni.
Hverjir eru bestu kyrrlátu staðirnir nálægt Reykjavík?
Meðal bestu kyrrlátu staðanna eru Mosfellsdalur, Hvalfjörður, Bjarnagjá, Ölfus og Óseyrartangi, með friðsælt landslag, fallegar ökuleiðir og færra fólk en á vinsælustu stöðunum.
Hversu langt er suðurströndin frá Reykjavík?
Upphaf suðurstrandarinnar er í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík, en staðir austar kalla á lengri akstur. Svæðið hentar því vel fyrir eina nótt eða rólega helgi.
Er þess virði að gista utan Reykjavíkur?
Já. Þá færðu meiri tíma til að njóta landslagsins án þess að flýta þér í bæinn, rólegra umhverfi, fallegar sólarupprásir og sólsetur og stutta leið að náttúruperlunum.
Hvar geta pör slakað á nálægt Reykjavík?
Mosfellsdalur, Hvalfjörður og suðurströndin eru tilvalin fyrir pör, með fallegum ökuleiðum, kyrrlátum ströndum og þægilegri gistingu.
Hvað er hægt að gera í innan við klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík?
Í um klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík getur þú skoðað Mosfellsdal, ekið fyrir Hvalfjörð eða kafað í Bjarnagjá. Þú getur líka kynnst hrauninu í Ölfusi eða gengið eftir afskekktri svörtu ströndinni á Óseyrartanga.

