Allar sögur · Ferðaráð · 20. nóvember 2025
Lúxusferðalag um Ísland á eigin bíl

Fáir staðir henta jafn vel fyrir ferðalag á eigin bíl og Ísland. Fallegir vegir tengja saman jökla, fossa, hraun, svartar sandstrendur og bæi við ströndina, svo aksturinn sjálfur verður hluti af upplifuninni.
Lúxusferðalag á eigin bíl er enn ríkulegri leið til að njóta landsins. Í stað þess að þjóta á milli staða ferðast þú í þægindum, gefur þér tíma og nýtur landslagsins. Hvort sem þú ætlar að verja nokkrum dögum á Suðurlandi eða fara lengra verður ferðin betri á rólegum hraða.
Hér förum við yfir hvað gerir lúxusferð á eigin bíl sérstaka, ásamt hagnýtum ráðum sem hjálpa þér að skipuleggja þægilega og eftirminnilega ferð.
Hvernig lítur lúxusferðalag um Ísland út?
Lúxus þýðir ekki það sama fyrir alla. Á Íslandi snýst hann síður um íburð og meira um að njóta landsins á eigin hraða og í þægindum.
Lúxusferðalag um Ísland felur gjarnan í sér:
Gistingu á boutique-hótelum umvöfðum náttúru
Þægilegan bíl sem hentar íslenskum vegum
Fallegar akstursleiðir frekar en þá stystu
Slökun í jarðböðum eftir dag á ferðinni
Íslenskan mat úr fersku hráefni úr héraði
Svigrúm fyrir óvænt stopp og ógleymanlegt útsýni
Margir velja þennan ferðamáta því hann leyfir þeim að njóta landslagsins án asa. Þú getur stoppað fyrir myndatöku hvenær sem er, tekið krók á leiðina eða einfaldlega notið akstursins.
Hvers vegna Suðurland er tilvalið fyrir lúxusferð á eigin bíl
Suðurland er eitt besta svæði landsins fyrir lúxusferðalag á eigin bíl. Þar fara margar af þekktustu náttúruperlum Íslands saman við þægilegar akstursvegalengdir, svo auðvelt er að skoða sig um án þess að sitja tímunum saman undir stýri.
Margir velja Suðurland því svæðið býður upp á:
Fjölbreytt landslag í þægilegri akstursfjarlægð
Stuttar, fallegar akstursleiðir sem skilja eftir meiri tíma til að skoða
Jafnvægi ævintýra og slökunar, allt frá jöklagöngum til jarðbaða
Þægileg boutique-hótel umvafin íslenskri náttúru
Greiða leið frá Reykjavík, svo auðvelt er að hefja ferðina
Suðurland sameinar þægindi, landslag og ógleymanlegar upplifanir.
Hvernig gerir þú meira úr bílferðinni?
Lúxusferðalag snýst um meira en að velja vandaða gistingu. Litlu atriðin, allt frá bílnum sem þú keyrir til upplifananna sem þú bókar, geta gert ferðina þægilegri, eftirminnilegri og ánægjulegri. Hér eru nokkrar leiðir til að gera meira úr tímanum á veginum.
1. Leigðu þægilegan gæðabíl
Þú verður lengi í bílnum, svo rétta valið skiptir sköpum. Vandaður jeppi eða lúxusbíll veitir auka þægindi á lengri leiðum og nóg pláss fyrir farangur og útivistarbúnað.
Eftir árstíð og ferðaáætlun er vert að skoða bíl með búnaði á borð við:
Fullkominn öryggisbúnað
Sætis- og stýrishita
Rúmgott innra rými og farangursrými
Fjórhjóladrif fyrir aukið öryggi í breytilegri færð
Ef þú ferðast að vetri til eða ætlar út fyrir helstu vegi veitir fjórhjóladrifinn bíll betra grip og stöðugleika.
Hugarró er hluti af lúxusnum. Eftir því hvaða bíl þú leigir geta viðbótartryggingar veitt vernd gegn algengum skakkaföllum eins og grjótkasti, sand- og öskufoki eða tjóni á framrúðu. Þá getur þú einbeitt þér að því að njóta akstursins.
2. Veldu fallegar leiðir frekar en þær fljótlegustu
Einn helsti kostur lúxusferðar á eigin bíl er frelsið til að hægja á sér. Í stað þess að fara alltaf stystu leið skaltu velja vegi sem sýna þér meira af landinu á leiðinni.
Hringvegurinn um Suðurland er kjörið dæmi. Í stað þess að keyra bara á milli áfangastaða ferðu fram hjá fossum, jöklum, svörtum sandströndum, hraunbreiðum og útsýnisstöðum við ströndina.
Ef leiðin liggur á Vesturland er vel þess virði að aka fyrir Hvalfjörð (veg 47) í stað þess að fara göngin. Leiðin tekur lengri tíma en launar þér með fallegu útsýni yfir fjörðinn, kyrrlátum sveitum og útsýnisstöðum við ströndina.
Þú getur líka byggt ferðina í kringum fallegar hringleiðir landsins, þar á meðal:
Gullna hringinn með fossum, goshverum og Þingvöllum
Silfurhringinn með heitum laugum, hraunhellum, fossum og sögustöðum á Vesturlandi
Demantshringinn með fossum, eldfjallalandslagi og strandlengju á Norðurlandi
Hafðu borð fyrir báru í dagskránni svo þú getir stoppað í hvert sinn sem fallegt landslag fangar augað. Bestu minningarnar verða oft til á óvæntum stöðum milli frægu áfangastaðanna.
3. Slakaðu á í íslenskum jarðböðum
Eftir dag á ferðinni jafnast ekkert á við að láta líða úr sér í náttúrulega heitu vatni. Jarðböðin sameina slökun og stórbrotið umhverfi og eru kjörin viðbót við hvaða lúxusferðalag sem er.
Eftir því hvar leiðin liggur er vert að heimsækja:
Bláa lónið fyrir hið rómaða steinefnaríka vatn og kísilleirmaskann
Sky Lagoon fyrir óhindrað útsýni yfir hafið og sjö skrefa Skjól-ritúalið
Hvammsvík fyrir einstaka, friðsæla umgjörð við fjörðinn
Gömlu laugina (Secret Lagoon) fyrir upprunalega upplifun af gamalli laug
Nokkrar klukkustundir í heitu vatni eru gott mótvægi við annasama daga á göngu eða í akstri.
Ef þú vilt gera enn betur við þig er vert að skoða vandaðri pakka, sem fylgja oft fríðindi á borð við einkaaðstöðu, veitingar eða húðvörur.
4. Njóttu íslensks matar og fínni veitingastaða
Góður matur er ómissandi hluti af lúxusferð. Gefðu þér tíma fyrir máltíðir úr fersku hráefni úr héraði, frekar en að flýta þér milli staða.
Margir veitingastaðir á Suðurlandi leggja áherslu á árstíðabundna matseðla með afurðum úr héraði og hefðbundnu íslensku bragði. Leitaðu að réttum með:
Íslensku lambakjöti
Ferskum fiski og sjávarfangi, eins og bleikju
Grænmeti og kryddjurtum úr héraði
Heimabökuðu rúgbrauði og mjólkurafurðum
Fyrir eftirminnilega máltíð er tilvalið að koma við á veitingastaðnum ÓMI á Black Sand Hotel. Árstíðabundinn matseðillinn dregur fram íslenskt hráefni í nútímalegri umgjörð, með útsýni yfir Óseyrartanga, eina af földu svörtu ströndunum á Suðurlandi.
5. Bókaðu ferðir með einkaleiðsögn
Ein einfaldasta leiðin til að gera ferðina enn betri er að bæta við einni eða tveimur einkaferðum. Þær eru persónulegri og þú kynnist landinu í fylgd fólks sem þekkir það vel.
Á Íslandi er enginn hörgull á einstökum upplifunum sem vert er að byggja heilan dag í kringum. Eftir áhugasviði má nefna:
Jöklagöngur
Vélsleðaferðir
Hraunhellaferðir
Íshellaferðir eftir árstíð
Bátsferðir um jökullón
Þyrlulendingar á jökli
Einkaferðir á ofurjeppum
Norðurljósamyndaferðir
Hestaferðir um hraunbreiður Íslands
Hvalaskoðun eða lundaferðir á hraðbátum
Minni hópar, sveigjanleg dagskrá og reyndir leiðsögumenn af svæðinu gera ferðalagið þægilegra og eftirminnilegra.
6. Gistu á boutique-hóteli með lúxusþægindum
Gistingin mótar alla ferðina. Eftir dag á ferðinni um Suðurland er fátt betra en að koma á hótel þar sem hugsað er fyrir öllu.
Við val á gistingu er gott að horfa eftir atriðum eins og:
Vönduðum rúmum og hágæða líni
Rúmgóðum, vel hönnuðum herbergjum
Heilsulind eða vellíðunaraðstöðu
Veitingastað og bar á staðnum
Fallegu umhverfi með greiðri leið að helstu stöðum
Black Sand Hotel í Ölfusi býður upp á þetta allt í friðsælli umgjörð við sjóinn, þar á meðal:
Kaffi og te frá L'OR á herbergjunum
Notaleg herbergi og svítur í skandinavískum anda
Rúm frá DUX og bómullarrúmföt frá Quagliotti
Handklæði frá Garnier-Thiebaut og baðvörur frá [ comfort zone ]
Heilsulind og veitingastað á staðnum fyrir þægilega slökun
Greiða leið að mörgum af helstu perlum Suðurlands
Staðsetningin við kyrrláta svarta strönd gefur auk þess friðsælt andrúmsloft og meira næði.
7. Íhugaðu að dvelja lengur á hverjum stað
Í stað þess að skipta um hótel á hverju kvöldi er gott að gista 2 til 3 nætur á sama stað. Rólegri taktur þýðir minni tíma í að pakka og keyra, og þú nýtur afslappandi frís á Íslandi þeim mun betur.
Með hótelið sem bækistöð verða dagsferðir auðveldar og þú átt alltaf notalegan stað til að snúa aftur á að kvöldi. Á Suðurlandi getur þú þannig skoðað fossa, jökla, svartar sandstrendur og útsýnisstaði án asa, notið langra máltíða, slakað á í heitu vatni og fundið faldar perlur.
Ráð við skipulagningu lúxusferðar um Ísland
Smá fyrirhyggja hjálpar þér að njóta afslappaðri og þægilegri ferðar. Hafðu þessi ráð í huga áður en þú leggur af stað í lúxusferðalagið um Ísland:
Ferðastu á jaðartímabilunum: Vor og haust eru rólegri. Þá er minna af fólki á vinsælum stöðum og auðveldara að fá gistingu, borð og ferðir.
Bókaðu boutique-gistingu snemma: Boutique- og lúxushótel við suðurströndina fyllast oft mörgum mánuðum fyrir háannatíma, svo það borgar sig að vita hvernig þú velur rétta hótelið áður en þú bókar.
Ferðastu á rólegri hraða: Verðu meiri tíma á færri stöðum í stað þess að reyna að sjá allt. Afslöppuð ferðaáætlun gefur hverri upplifun meira rými.
Gerðu ráð fyrir hvíldarstundum: Skildu eftir pláss fyrir langa hádegisverði, jarðböð eða einfaldlega notalega stund á hótelinu í stað þess að fylla hverja klukkustund af skoðunarferðum.
Bókaðu vandaðri upplifanir fyrir fram: Einkaferðir, þyrluflug, jöklaævintýri og heilsulindarpakkar eru oft með takmarkað framboð og ætti að bóka snemma.
Skipuleggðu í kringum borðapantanir: Ef það eru veitingastaðir sem þú vilt alls ekki missa af, pantaðu borð fyrir fram, sérstaklega yfir sumarið.
Veldu eitt eða tvö vegleg dekur: Hvort sem það er þyrlulending eða vandaður heilsulindarpakki gera fáar en vel valdar upplifanir ferðina eftirminnilegri.
Með góðri fyrirhyggju verður ferðalagið afslappaðra, þægilegra og eftirminnilegra.
Hægðu á þér og upplifðu Ísland í þægindum
Hver ferð um Ísland er einstök, en þær bestu skilja eftir rými til að hægja á sér. Löng kvöldmáltíð eða stund í heitu vatni getur verið jafn eftirminnileg og fossarnir og jöklarnir.
Lúxusferðalag um Ísland mælist ekki í fjölda staða sem þú heimsækir, heldur í því hversu vel þú upplifir þá. Vönduð gisting, vel valdar upplifanir og afslöppuð ferðaáætlun leyfa þér að njóta ferðarinnar til jafns við áfangastaðinn.
Fyrir þá sem ferðast um Suðurland er Black Sand Hotel friðsælt athvarf á milli ævintýra. Kyrrlát umgjörð, vönduð þægindi og góð staðsetning gera hótelið að kjörinni bækistöð til að kynnast einu fegursta svæði landsins.
Viltu byrja að skipuleggja? Lestu þriggja daga lúxusferðaáætlunina okkar og sæktu þér innblástur.
Algengar spurningar
Er gott að ferðast um Ísland á eigin bíl?
Já, að keyra á eigin bíl er ein vinsælasta leiðin til að skoða Ísland. Vel við haldnir vegir tengja saman flesta helstu áfangastaði landsins og gefa þér frelsi til að ferðast á eigin hraða.
Er Ísland gott land fyrir lúxusferðalag á bíl?
Já, Ísland er frábær áfangastaður fyrir lúxusferðalag á bíl. Hér eru fallegar akstursleiðir, boutique-gisting, jarðböð, framúrskarandi matur og ógleymanlegt landslag.
Hver er besta lúxusakstursleiðin á Íslandi?
Einn besti kosturinn er lúxusferð um suðurströndina. Hún sameinar fossa Suðurlands, jökla, svartar sandstrendur, jarðböð og fallegan akstur við ströndina í þægilegum dagleiðum.
Hvað þarf marga daga í lúxusferð um suðurströndina?
Að minnsta kosti þrír dagar eru kjörnir fyrir þægilega bílferð um suðurströndina. Þá hefur þú nægan tíma fyrir hápunkta svæðisins og um leið rými til að slaka á og njóta hvers áfangastaðar án asa.
Þarf fjórhjóladrifinn bíl í lúxusferðalag um Ísland?
Ekki alltaf. Á sumrin dugar venjulegur bíll á flestum malbikuðum vegum, þar á meðal um suðurströndina. Ef þú kemur að vetri til eða ætlar að aka malarvegi eða inn á hálendið er mælt með fjórhjóladrifi.
Hvar er best að gista í lúxusferðalagi um Ísland?
Boutique-hótel umvafin náttúru, eins og Black Sand Hotel, eru frábær kostur. Þau bjóða upp á rólegra andrúmsloft, þægilega gistingu og greiða leið að nærliggjandi perlum, svo þú færð sem mest út úr ferðinni.
Dugar suðurströndin ein og sér í eitt ferðalag?
Já, á Suðurlandi er nóg af áfangastöðum og upplifunum fyrir eftirminnilegt ferðalag út af fyrir sig. Milli fossa, jökla og svartra sandstranda getur þú notið margra daga án þess að þurfa að keyra hringinn um allt land.

