Allar sögur · Blogg · 5. maí 2026
Faldar svartar strendur á Suðurlandi

Á Suðurlandi eru nokkrar af frægustu svörtu ströndum landsins og hundruð þúsunda gesta koma þangað á hverju ári. Reynisfjara stendur fyllilega undir orðsporinu, en á Suðurlandi leynast líka margar rólegri strendur sem færri þekkja.
Ef þú vilt komast frá mannfjöldanum bjóða minna þekktar svartar strendur við suðurströndina upp á engu síðra landslag, allt frá friðsælum strandlengjum og hraunsléttum til afskekktra fjara þar sem fáir eru á ferli.
Hér eru fjórar faldar svartar strendur á Suðurlandi, ásamt hagnýtum ráðum fyrir heimsóknina.
Af hverju að heimsækja faldar svartar strendur?
Faldar strendur eru rólegri leið til að upplifa eldbrunna strandlengjuna. Þar eru færri á ferli, svo þær henta vel fyrir göngur, ljósmyndun og til að njóta náttúrunnar á eigin hraða. Hver þeirra er góður viðkomustaður á lengri ferð um suðurströndina. Í 3 daga ferðaáætluninni okkar um Suðurland, sem hefst á Black Sand Hotel, sérðu hvernig þær raðast saman.
Fjórar faldar svartar strendur á Suðurlandi
Frá afskekktum fjörum til víðáttumikilla sandsléttna: þessar strendur sýna rólegri hlið á strandlengju Suðurlands.
1. Óseyrartangi
Óseyrartangi er mjór tangi í Ölfusi, milli Ölfusár og Atlantshafsins. Fjaran er um 5 km löng og að mestu ósnortin af mannvirkjum. Fyrir utan Black Sand Hotel, veitingastað og stóran humarskúlptúr er fátt annað við ströndina.
Afskekkt staðsetningin gerir Óseyrartanga að einni rólegustu fjöru suðurstrandarinnar. Þar geturðu gengið langar göngur, fylgst með sjófuglum eða einfaldlega horft út á hafið í friði. Á veturna rekur stundum ís á land, sem setur enn sterkari svip á svarta sandinn.
Ef þú gistir á Black Sand Hotel er fjaran rétt fyrir utan dyrnar. Hótelið er líka góður upphafspunktur til að skoða hraunið í Ölfusi og Þorlákshöfn, einn helsta brimbrettastað landsins.
Hagnýtar upplýsingar um Óseyrartanga
Aðkoma: Um veg 34 Ölfusmegin eða í gegnum Eyrarbakka að austanverðu
Bílastæði: Ókeypis bílastæði við hótelið, veitingastaðinn og humarskúlptúrinn
Afþreying: Fjörugöngur, fuglaskoðun, ljósmyndun
Aðgengilegt á veturna? Já, ef veður leyfir
2. Stokkseyrarfjara (Skeljafjaran)
Ströndin við Stokkseyri er róleg svört strönd skammt frá Reykjavík. Strandlengjan mótast af Þjórsárhrauni, um 8.600 ára gömlu hrauni sem er að hluta mosavaxið og teygir sig út í Atlantshafið. Fjaran er því hrjúfari og grýttari en margar aðrar svartar strendur landsins.
Fjaran er oft kölluð Skeljafjaran og þar er gaman að leita að skeljum, sjávargleri og smákröbbum. Farfuglarnir setja líka svip á ströndina.
Ábending: Fyrir eða eftir gönguna er tilvalið að setjast á Tónlistarbekkinn, bekk við sjóinn með útsýni yfir fjöruna þar sem þú getur skannað QR-kóða og hlustað á tónlist úr Árborg.
Hagnýtar upplýsingar um Stokkseyrarfjöru
Aðkoma: Um veg 33 meðfram ströndinni eða veg 314 að ofanverðu
Bílastæði: Ókeypis bílastæði nálægt fjörunni
Afþreying: Fjörugöngur, fuglaskoðun, ljósmyndun og skeljaleit
Aðgengilegt á veturna? Já, ef veður leyfir
3. Sólheimasandur
Sólheimasandur er víðáttumikil svört sandslétta milli Skógafoss og Víkur við hringveginn. Hún mótaðist af eldgosum og jökulhlaupum á þúsundum ára og flatt, opið landslagið á sér vart hliðstæðu. Hér skynjarðu vel stærðargráðu íslensks eldfjallalandslags.
Þótt sandurinn sé þekktastur fyrir DC-3 flakið finnst mörgum landslagið í kring ekki síður eftirminnilegt. Gangan frá bílastæðinu er um 4 km og dreifir fólki, svo þar virðist aldrei margmenni. Ef þú vilt sleppa göngunni eru skutluferðir og fjórhjólaferðir í boði.
Hagnýtar upplýsingar um Sólheimasand
Aðkoma: Um hringveginn og síðan 4 km ganga frá bílastæðinu
Bílastæði: Stórt gjaldskylt bílastæði við hringveginn
Afþreying: Gönguferðir, útsýnisskoðun, ljósmyndun, fjórhjólaferðir
Aðgengilegt á veturna? Já, en aðeins í hentugu veðri
4. Víkurfjara
Víkurfjara er rétt við þorpið í Vík og gleymist oft hjá þeim sem halda beint í Reynisfjöru. Hátt klettabelti skilur strendurnar að, en frá Víkurfjöru er fallegt útsýni að Reynisdröngum í mun rólegra umhverfi.
Fjaran afmarkast af grösugum hlíðum sem fyllast af villiblómum snemma sumars og mynda fallega andstæðu við svarta sandinn. Friðsældin gerir hana líka vinsæla fyrir hestaferðir, og umhverfið heillar pör sem skipuleggja brúðkaup á svörtum sandströndum Íslands.
Athugaðu: Þótt þar sé rólegra en í Reynisfjöru getur hafið verið hættulegt, svo fylgdu alltaf öryggisleiðbeiningum á staðnum.
Hagnýtar upplýsingar um Víkurfjöru
Aðkoma: Stuttur akstur frá miðbæ Víkur og síðan 5 til 7 mínútna ganga
Bílastæði: Ókeypis bílastæði á vestara bílastæðinu
Afþreying: Fjörugöngur, útsýnisskoðun, hestaferðir, ljósmyndun
Aðgengilegt á veturna? Já, ef veður leyfir
Góð ráð fyrir svörtu strendurnar
Svörtu strendurnar eru fallegar en geta verið óútreiknanlegar. Hafðu þessi ráð í huga til að njóta þeirra á öruggan hátt og hlífa náttúrunni:
Haltu þig frá flæðarmálinu: Stórar öldur og sterkir straumar geta komið óvænt, jafnvel á rólegum ströndum. Haltu alltaf öruggri fjarlægð frá sjónum og fylgdu merkingum á staðnum.
Fylgstu með veðurspánni: Aðstæður við ströndina breytast hratt, einkum í hvassviðri og rigningu. Athugaðu alltaf spána á vedur.is áður en þú leggur af stað.
Vertu í góðum skóm: Sandurinn, grjótið og stígarnir eru oft blautir eða ójafnir. Traustir, vatnsheldir skór veita betra grip.
Klæddu þig í lögum: Við ströndina er oft kaldara en inn til landsins. Hlýtt innsta lag og vatns- og vindheld yfirhöfn halda á þér hita.
Haltu þig á merktum stígum: Hjálpaðu til við að vernda viðkvæma strandnáttúruna og gróðurinn.
Ekki aka í fjörunni: Akstur í fjörunni er bannaður og getur valdið varanlegum skemmdum á landslaginu.
Skildu ekkert eftir: Taktu allt rusl með þér og sýndu dýralífinu tillitssemi svo strendurnar haldist ósnortnar.
Skoðaðu fleiri áhugaverða staði á Suðurlandi: Það er nóg um að vera í grennd við svörtu sandstrendurnar, allt frá fossaskoðun til hestaferða.
Faldar svartar strendur Suðurlands
Faldar strendur Suðurlands eru rólegri leið til að kynnast eldbrunninni strandlengjunni. Fjarri fjölförnustu stöðunum finnurðu tilkomumikið landslag, friðsælar gönguleiðir og náttúru sem þú nýtur í hægari takti.
Hvort sem þú ert að skipuleggja ferðalag um suðurströndina eða vilt sjá meira en Reynisfjöru eiga þessar strendur skilið pláss í áætluninni. Hver þeirra sýnir nýja hlið á síbreytilegri strandlengju landsins.
Algengar spurningar
Eru til faldar svartar strendur á Íslandi?
Já. Fyrir utan þekktar strendur eins og Reynisfjöru eru á Íslandi margar minna þekktar svartar strendur, til dæmis Óseyrartangi, Stokkseyrarfjara, Sólheimasandur og Víkurfjara, þar sem sjaldan er margmenni.
Hvaða svarta strönd á Suðurlandi er rólegust?
Óseyrartangi er yfirleitt ein rólegasta svarta ströndin á Suðurlandi. Afskekkt staðsetning og fáir gestir gera hann að góðum stað til að komast frá ösinni.
Eru allar svartar strendur á Íslandi eins og Reynisfjara?
Nei. Þær eiga svarta sandinn sameiginlegan en hver strönd hefur sinn karakter. Reynisfjara er þekkt fyrir drangana og stuðlabergið, en við Stokkseyri er hrjúf strandlengja mótuð af hrauni.
Er hægt að synda við svörtu strendurnar?
Nei, sund er ekki ráðlegt vegna kulda, sterkra strauma og óútreiknanlegra alda.
Hvaða svörtu strendur eru næst Reykjavík?
Óseyrartangi og Stokkseyrarfjara eru meðal þeirra svörtu stranda sem eru næst Reykjavík. Óseyrartangi er um 40 mínútur frá borginni og Stokkseyri litlu lengra.
Hvaða svörtu strendur eru nálægt Black Sand Hotel?
Óseyrartangi er rétt fyrir utan dyrnar á Black Sand Hotel. Stokkseyrarfjara er líka skammt frá, í um 10 mínútna akstursfjarlægð meðfram ströndinni.

